Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 31. október 2019 21:43
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Skagafréttir 
Jón Aðalsteinn tekur við Kára (Staðfest)
Jón Aðalsteinn þjálfaði áður í Árbænum.
Jón Aðalsteinn þjálfaði áður í Árbænum.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Jón Aðalsteinn Kristjánsson er nýr þjálfari knattspyrnufélagsins Kára á Akranesi. Gengið var frá ráðningu hins þaulreynda þjálfara í kvöld og Skagafréttir greina frá.

Jón hefur mikla reynslu sem þjálfari . Hann þjálfað liði KF og Hamars þegar þau léku í 2. deild karla.

Lið Kára lék í 2. deildinni á síðustu leiktíð og endaði í 10. sæti af alls 12 liðum á sínu öðru ári í þriðju efstu deild á Íslandi. Liðið hefur verið notað sem varalið fyrir ÍA.

Jón hefur einnig þjálfað Skallagrím, Þrótt Vogum, ÍH og Reyni Sandgerði. Þar að auki hefur Jón þjálfað meistaraflokkslið Vals og Fylkis í kvennaflokki.

Á síðustu leiktíð þjálfaði Jón lið Elliða sem fór undir hans stjórn úr 4. deild upp í 3. deild.
Athugasemdir
banner
banner
banner