Fotbolti.net
31.12.12 - 19:00
Magnús Már Einarsson

Daniel Carrico til Reading (Staðfest)

Daniel Carrico til Reading (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Reading hefur keypt miðjumanninn Daniel Carrico frá portúgalska félaginu Sporting Lisabon.

Þessi 24 ára gamli leikmaður er búinn að skrifa undir eins og hálfs árs samning við Reading með möguleika á árs framlengingu.
Mörg stór félög hafa sýnt Carrico áhuga en hann hefur áður verið orðaður við Manchester United, Manchester City og Chelsea.

Carrico var áður fyrirliði hjá Sporting Lisabon en hann hefur einungis leikið tvo leiki á þessu tímabili vegna vandræða í samningamálum.

Carrico mun koma til Englands síðar í vikunni og hann gæti leikið sinn fyrsta leik með Reading þegar liðið mætir Crawley Town í enska bikarnum um næstu helgi.

Heimild: Heimasíða Reading

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.