31.12.16 - 10:37
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Aron Snær í Fylki (Staðfest)

Samningurinn handsalaður.

Mynd: Knattspyrnudeild Fylkis

Samningurinn handsalaður.

Mynd: Knattspyrnudeild Fylkis
Fylkir hefur fengið ungan og efnilegan markvörð til liðs við sig. Aron Snær Friðriksson, sem er fæddur 1997, hefur skrifað undir samning út 2019, en hann kemur frá Breiðablik.
Aron Snær er annar markvörðurinn sem Fylkir fær til sín eftir að tímabilinu lauk, en áður hafði Bjarni Þórður Halldórsson komið frá Aftureldingu. Fyrir hjá félaginu er Ólafur Íshólm Ólafsson, en hann á dögunum undir samning til 2019. Það er gott úrval af markvörðum í Árbænum fyrir næsta tímabil.

Aron Snær var í láni hjá Vestra í 2.deildinni í sumar, en þar spilaði hann 10 leiki.
Fylkir féll úr Pepsi-deildinni í sumar eftir að hafa endað í næst-neðsta sæti deildarinnar með 19 stig. Liðið leikur því í næst-efstu deild í fyrsta sinn síðan fyrir aldamót. Helgi Sigurðsson tók við liðinu í október og hann stefnir á að stýra Fylkismönnum aftur upp í deild þeirra bestu.