Fotbolti.net
31.12.16 - 13:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Lovísa Sólveig framlengir hjá Fylki (Staðfest)

Lovísa Sól­veig Erl­ings­dótt­ir.

Lovísa Sól­veig Erl­ings­dótt­ir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Kvennaboltinn
Lovísa Sólveig Erlingsdóttir hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Fylkis fram til ársins 2019, en þetta kemur fram í tilkynningu frá Árbæjarliðinu í dag.

Lovísa, sem er 27 ára gömul, kom til Fylkis haustið 2006 og er að fara að spila sitt tíunda tímabil með Fylki á næsta ári. Hún var með samning út 2018, en framlengdi hann um ár og verður því hjá Fylki út tímabilið 2019.
Lovísa hefur spilað 157 leiki hjá Fylki í deild og bikar og er einn leikjahæsti leikmaður félagsins. Hún á að baki 4 leiki með U17 landsliði Íslands og 12 leiki með U19 liðinu.

„Þetta eru frábærar fréttir fyrir Fylki en Lovísa er mjög mikilvæg fyrir félagið. Hún býr yfir mikilli reynslu og hefur staðið sig frábærlega hjá okkur,\" sagði Halldór Steinsson, formaður meistaraflokks ráðs kvenna hjá Fylki, í fréttatilkynningu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.