Jóhann Magni Jóhansson framherji Reynismanna lék á alls oddi í 4-0 sigri liðsins á Hamar síðastliðið föstudagskvöldið. Jóhann Magni skoraði þrennu í leiknum og var síógnandi en hann er leikmaður tólftu umferðar hér á Fótbolta.net.

Jóhann Magni Jóhannsson var á sínum tíma á mála hjá ÍBV áður en hann fór í Reyni Sandgerði fyrir sumarið 2004. Árið 2006 lék Jóhann Magni með KFS en undanfarin tvö tímabil hefur hann verið á mála hjá Reyni. Í fyrra skoraði þessi 24 ára gamli framherji tvö mörk í fyrstu deildinni en í ár er hann kominn með átta mörk í annarri deildinni.
Reynismenn höfðu ekki unnið leik í deildinni síðan gegn Magna 7.júní og liðið var því búið að bíða lengi eftir sigrinum.
,,Við vorum búnir að spila vel í leikjunum tveimur fyrir þennan leik. Mér fannst við vera betri gegn ÍR en síðan fengum við á okkur tvær vítaspyrnur á tveimur mínútum þegar við höfðum verið líklegri til að skora annað markið."
,,Það þýðir ekki alltaf að tala um að við höfum verið betri, við verðum bara að klára þessa helvítis leiki," sagði Jóhann Magni sem telur að spilamennskan sé á réttri leið hjá Reyni.
,,Það komu nokkrir leikmenn rétt fyrir mót og við náðum kannski ekki að spila okkur saman eins og við hefðum viljað. Þetta er hins vegar að koma núna. Við vorum líka að fá Hafstein Ingvar (Rúnarsson) og það er klárlega mikill styrkur."
Reynismenn eru sem stendur í áttunda sæti deildarinnar með þrettán stig en liðið er þó einungis þremur stigum frá fjórða sætinu.
,,Við eigum að vera ofar í töflunni. Við erum búnir að vera betri aðilinn í mörgum leikjum en það hefur ekkert dottið með okkur. Svona er bara fótboltinn, þú verður að skora fleiri mörk en andstæðingurinn. Þetta er jöfn deild, það geta allir unnið alla nánast, nema ÍR, þeir virðast klára sína leiki."
Næsti leikur Reynismanna er á fimmtudag en þá mætir liðið Víði í grannslag sem margir bíða spenntir eftir.
,,Það geggjað að spila á móti Víði. Fyrri leikurinn var góður, það var troðið á vellinum og þetta var harður leikur," sagði Jóhann Magni en hann setti mark sitt á fyrri leikinn í maí.
,,Ég skoraði jöfnunarmarkið á 95.mínútu. Það var mjög sætt. Stefnan hjá flestum Sandgerðingum var að fara upp um deild og ef það er ekki hægt þá er næsta stefna að vinna Víði, þetta er bara eins og Tottenham- Arsenal," sagði Jóhann Magni að lokum í samtali við Fótbolta.net.
Sjá einnig
Leikmaður 11.umferðar - Milan Djurovic (Hamar)
Leikmaður 10.umferðar - Hallgrimur Mar Steingrímsson (Völsungi)
Leikmaður 9.umferðar - Baldvin Jón Hallgrímsson (ÍR)
Leikmaður 8.umferðar - Laszlo Szilagyi (Magni)
Leikmaður 7.umferðar - Paul Clapson (Afturelding)
Leikmaður 6.umferðar - Stefán Björn Aðalsteinsson (Völsungur)
Leikmaður 5.umferðar - Tómas Joð Þorsteinsson (Afturelding)
Leikmaður 4.umferðar - Bojan Djordjevic (Víðir Garði)
Leikmaður 3.umferðar - Mirnes Smajlovic (Hvöt)
Leikmaður 2.umferðar - Ögmundur Rúnarsson (Grótta)
Leikmaður 1.umferðar - Árni Freyr Guðnason (ÍR)
Athugasemdir