Paul Clapson framherji Aftureldingar skoraði þrennu í 5-2 sigri liðsins á Gróttu í sjöundu umferðinni í annarri deild karla í gærkvöldi. Paul er leikmaður sjöundu umferðar hér á Fótbolta.net.

Paul Clapson er 25 ára enskur framherji. Paul kom til Aftureldingar frá KÍ Klakksvík í vetur en hann var þriðji markahæsti leikmaðurinn í færeysku deildinni í fyrra. Áður lék Paul með háskólaliðum í Bandaríkjunum en framan af ferli sínum lék hann sem markvörður.
,,Það var ekki einungis frammistaða mín sem var góð. Allir voru góðir, ég vil ekki taka allt hrósið. Ég kláraði færin eftir gott spil og lék ágætlega."
Paul hefur skorað í sjö fyrstu leikjum Aftureldingar í sumar og hann er markahæstur í deildinni með tíu mörk. Paul telur sig þó hafa getað gert ennþá betur.
,,Ég hefði átt að skora meira, ég hef misnotað góð færi. Ég er ánægður með að við höfum ekki tapað, það er aðalmálið. Mörkin eru bónus."
,,Ég fæ góða þjónustu og ef ég fæ þrjú eða fjögur góð færi mun ég skora eitt eða tvö," sagði Paul sem er ánægður með byrjun Aftureldingar í sumar en liðið er í toppsætinu ásamt ÍR.
,,Við erum mjög gott lið, ég nýt þess að spila með öllum strákunum og ég tel að við getum farið upp um deild."
,,Við höfum góða samstöðu innan hópsins, ef við fáum mörk á okkur þjöppum við okkur saman og byrjum að spila betri fótbolta. Svo framarlega sem við höldum einbeitingu þá verður þetta í lagi."
Paul hefur ólíkan bakgrunn miðað við flesta aðra framherji því hann lék einnig sem markvörður upp í meistaraflokk.
,,Þegar ég var yngri lék bæði sem markvörður og framherji, liðin sem ég var í höfðu tvo markverði og ég spilaði því seinni hálfleikinn frammi."
,,Ég hætti alfarið sem markvörður fyrir fjórum árum og ákvað að vera einungis framherji, eins og flestir markverðir telja sig geta," sagði Paul en upphaflega fór hann til KÍ Klakksvík í Færeyjum bæði sem markvörður og útileikmaður.
,,Þjálfarinn sem fékk mig fékk mig sem markvörð en hann vissi að ég gæti spilað frammi. Hann sagðist ætla að fá mig í báðar stöður en ætlaði að nota mig mest í markinu. Ég spilaði þrjá leiki í markinu á undirbúningstímabilinu og hélt hreinu en síðan fór ég fram og skoraði," sagði Paul að lokum við Fótbolta.net.
Sjá einnig:
Leikmaður 6.umferðar - Stefán Björn Aðalsteinsson (Völsungur)
Leikmaður 5.umferðar - Tómas Joð Þorsteinsson (Afturelding)
Leikmaður 4.umferðar - Bojan Djordjevic (Víðir Garði)
Leikmaður 2.umferðar - Ögmundur Rúnarsson (Grótta)
Leikmaður 1.umferðar - Árni Freyr Guðnason (ÍR)
Athugasemdir