Mbeumo gæti farið með Frank til Tottenham - Newcastle reynir við Joao Pedro - Hvert fer Leao?
   mán 19. maí 2008 14:57
Magnús Már Einarsson
2.deild: Leikmaður 1.umferðar - Árni Freyr Guðnason (ÍR)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrsta umferðin í annarri deild karla fór fram síðastliðið föstudagskvöld. Árni Freyr Guðnason fór þar mikinn á miðjunni í 2-0 sigri ÍR á Gróttu en hann skoraði meðal annars í

Árni Freyr Guðnason
Árni Freyr Guðnason er 22 ára gamall en hann getur leikið bæði í miðjunni og í fremstu víglínu. Árni er uppalinn hjá FH og lék sinn fyrsta mótsleik með meistaraflokki árið 2005 en árið 2006 lék hann þrjá leiki í Landsbankadeildinni. Eftir stutt stopp hjá Fremad Aarhus í Danmörku í fyrravetur fór Árni til Reynis Sandgerði þar sem hann hefur komið sterkur inn síðari hluta sumars eftir að hafa átt við meiðsli að stríða. Í vetur ákvað Árni síðan að ganga til liðs við ÍR.
,,Það var mikilvægast að vinna leikinn og síðan var gaman að spila vel," sagði Árni við Fótbolta.net í dag.

Árni er bólginn og marinn eftir leikinn en hann fékk högg í skallaeinvígi í leiknum á föstudagskvöld.

,,Ég fékk höfuðhögg þegar ég var í skallaeinvígi, ég er með gott glóðurauga og er marinn í andlitinu."

Árni er uppalinn hjá FH eins og áður kom fram en í vetur ákvað hann að ganga til liðs við ÍR-inga.

,,Þetta er svolítið öðruvísi en maður er vanur en hérna er frábær þjálfari og frábærir strákar."

,,Maður er búinn að vera í stærri klúbbi þar sem kannski er gert meira fyrir mann og æfingarnar í sjálfu sér betri en við verðum bara að æfa vel og koma okkur upp um deild, það er markmiðið númer 1,2 og 3. Ég held að við séum með jafnt yfir besta liðið ef við erum í lagi,"
sagði Árni en ÍR-ingum er spáð efsta sæti í annarri deildinni í sumar.

Guðlaugur Baldursson er við stjórnvölinn hjá Breiðholtsliðinu en hann þekkir Árna vel síðan úr yngri flokkunum hjá FH og úr Lækjarskóla í Hafnarfirði þar sem þeir störfuðu báðir í vetur.

,,Ég þekki Lauga mjög vel, ég hef verið að vinna hjá honum (sem íþróttakennari), spila hjá honum og hef spilað hjá honum lengi," sagði Árni en Guðlaugur hafði mikil áhrif á að hann ákvað að fara til ÍR í vetur.

,,Það hafði eiginlega úrslitaáhrifin, það komu einhver tilboð frá öðrum liðum í fyrstu deildinni en síðan ákvað ég bara að taka þátt í uppganginum í Breiðholtinu."

Á síðustu leiktíð náði Árni einungis síðari hlutanum þar sem hann átti vði bakmeiðsli að stríða.

Markmiðið hjá Árna í sumar er einfalt en hann vonast til að geta spilað alla leikina og að meiðslin verði ekki að hrjá hann.

,,Ég vona að bakið verði alveg heilt. Á meðan tímabilið var í fyrra var þetta gott. Síðan var þetta stíft og erfitt um veturinn en það er fínt núna," sagði Árni Freyr Guðnason, leikmaður 1.umferðar í annarri deild.
Athugasemdir
banner
banner