Mbeumo gæti farið með Frank til Tottenham - Newcastle reynir við Joao Pedro - Hvert fer Leao?
   mán 30. júní 2008 19:08
Magnús Már Einarsson
2.deild: Leikmaður 8.umferðar - Laszlo Szilagyi (Magni)
Laszlo Szilagyi.
Laszlo Szilagyi.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Atli Már Rúnarsson þjálfari Magna.
Atli Már Rúnarsson þjálfari Magna.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Ungverski miðjumaðurinn Laszlo Szilagyi átti mjög góðan leik þegar að Magna lagði Hamar 2-1 á útivelli í annarri deildinni á laugardag. Laszlo er leikmaður 8.umferðar hér á Fótbolta.net.


Laszlo Szilagyi

Laszlo Szilagyi er ungverskur miðjumaður á 32.aldursári. Laszlo lék í heimalandi sínu áður en hann gekk til liðs við Magna í vor. Í sumar hefur hann leikið átta leiki með liðinu í annarri deildinni og skorað í þeim tvö mörk..
,,Það var gott að vinna, það er alltaf gott að vinna og liðið er að spila betur núna en í fyrstu leikjunum," sagði Laszlo ánægður við Fótbolta.net í dag.

Atli Már Rúnarsson þjálfari Magna er einnig mjög ánægður með frammistöðu Laszlo í sumar.

,,Ég er mjög ánægður með frammistöðu hans. Þetta er duglegur strákur og hann hefur verið fljótur að aðlagast," sagði Atli sem reynir að koma skilaboðum til Laszlo þrátt fyrir að leikmaðurinn tali fremur takmarkaða ensku.

,,Það er smá bras en maður kemur skilaboðum til hans. Maður er hálftíma að keyra á Grenivík frá Akureyri og maður getur tjáð sig við hann fyrir æfingu og eftir æfingu. Hann er líka að læra ensku og er með orðabók en ég er hins vegar lítið í ungverskunni."

Laszlo, eða Sissi eins og hann er kallaður hjá Magna, kann vel við sig fyrir Norðan.

,,Ég er ánægður hjá Magna. Þjálfarinn, stjórnin og leikmennirnir eru vingjarnlegir og ég kann vel við mig."

Laszlo kom hingað til lands í gegnum samlanda sinn og vin, Sandor Matus, sem hefur varið mark KA undanfarin ár.

,,Ég var að þjálfa Sandor í markinu hjá KA í fyrra og hann sagðist hafa leikmenn úti sem myndi örugglega henta vel í þennan bolta þannig að maður ákvað að fara þessa leið frekar en að tala við umboðsmenn. Sandor hefur verið mjög hjálplegur í þessu," sagði Atli Már en markmiðið hjá Magna er skýrt í sumar.

,,Aðalamarkmiðið hjá okkur er að halda sætinu í deildinni," sagði Laszlo en Magnamenn hafa núna sex stig eftir erfiða byrjun.

,,Við vorum 2-0 yfir gegn Gróttu á dögunum þegar að sex mínútur voru eftir en við töpuðum 3-2, liðið hefur hins vegar verið að bæta sig að undanförnu."

Þessi geðþekki leikmaður kom til Magna í vor og kom beint í fyrsta leik liðsins gegn Tindastól. Sá leikur fór fram á möl á Grenivík þar sem að grasvöllurinn var ekki tilbúinn.

,,Ég vildi fara aftur heim," sagði Laszlo hlægjandi aðspurður út í hvernig fyrstu leikurinn hefði verið. ,,Þeir sögðu mér hins vegar að þetta yrði bara í einn leik, núna erum við á grasi og það er fínt." sagði Laszlo Szilagyi, leikmaður áttundu umferðar á Fótbolta.net.

Sjá einnig:
Leikmaður 7.umferðar - Paul Clapson (Afturelding)
Leikmaður 6.umferðar - Stefán Björn Aðalsteinsson (Völsungur)
Leikmaður 5.umferðar - Tómas Joð Þorsteinsson (Afturelding)
Leikmaður 4.umferðar - Bojan Djordjevic (Víðir Garði)
Leikmaður 2.umferðar - Ögmundur Rúnarsson (Grótta)
Leikmaður 1.umferðar - Árni Freyr Guðnason (ÍR)
Athugasemdir
banner