Níundu umferðinni í annarri deild karla lauk í gærkvöldi. Baldvin Jón Hallgrímsson lék frábærlega í vörn ÍR þegar að liðið lagði Aftureldingu 2-1 í toppslag deildarinnar síðastliðinn föstudag. Baldvin Jón var eins og klettur í vörninni hlýtur nafnbótina leikmaður 9.umferðar hér á Fótbolta.net.

Varnarmaðurinn Baldvin Jón Hallgrímsson er uppalinn í Mývatnssveit og lék með Völsungi áður en hann fór í Fylki. Þessi þrítugi leikmaður lék með Leifri, Aftureldingu, Val og Þrótti áður en hann fór í ÍR í fyrra.
,,Þetta var toppslagurinn í deildinni og það var gott að geta skilið þá aðeins fyrir aftan sig og eins Víði og Hött, það lengist alltaf bilið."
ÍR-ingar eru einir á toppi deildarinnar með 25 stig, þremur stigum á undan Aftureldingu og sjö stigum á undan Víði.
,,Það hefur gengið mjög vel hingað til þó að við höfum ekki spilað frábærlega í sumum leikjum þá erum við að klára leikina. Við erum að vinna og það er engin smá karakter, það er ekki hægt að biðja um meira en að vera slakur og vinna samt."
,,Að sjálfsögðu höldum við áfram, mótið er ekki einu sinni hálfnað. Við erum á góðum stað og á áætlun en það þarf lítið að gerast til að staðan breytist. Þetta er ekki búið fyrr en síðasti leikurinn er búinn."
ÍR-ingar voru lengi vel í toppbaráttunni í fyrra en endaði í fjórða sætinu að lokum og missti af sæti í fyrstu deild.
,,Við vorum að spila vel á móti liðunum sem voru af svipuðum styrkleika og við en vorum að tapa fyrir liðum sem voru neðar í töflunni. Í restina á mótinu í fyrra vorum menn kannski ekkert griðarlega stemmdir eftir fráfall Geira (Ásgeirs Elíassonar) og það voru náttúrulega mikilvægustu leikirnir á tímabilinu."
Breiddin hjá ÍR er mikil í ár og þrátt fyrir að margir séu frá vegna meðsla, þá hefur það ekki sett mikið strik í reikninginn.
,,Núna eru níu manns meiddir og samt erum við með þetta sterkt byrjunarlið. Ég efast um að það séu mörg 2.deildarlið og hvað þá 1.deildarlið sem geta leyft sér að missa níu menn í meiðsli og verið samt með svona sterkt lið," sagði Baldvin en ÍR-ingar ætlar að reyna að halda sigurgöngu sinni áfram þegar að liðið fær Hött í heimsókn á laugardag.
,,Það vilja náttúrulega öll lið vinna liðið í efsta sætinu, liðin koma upp tjúnnuð í þessu leiki og við þurfum bara að ná að halda þeim niðri, þegar við gerum það þá erum við sterkir," sagði Baldvin Jón Hallgrímsson að lokum við Fótbolta.net.
Sjá einnig
Leikmaður 8.umferðar - Laszlo Szilagyi (Magni)
Leikmaður 7.umferðar - Paul Clapson (Afturelding)
Leikmaður 6.umferðar - Stefán Björn Aðalsteinsson (Völsungur)
Leikmaður 5.umferðar - Tómas Joð Þorsteinsson (Afturelding)
Leikmaður 4.umferðar - Bojan Djordjevic (Víðir Garði)
Leikmaður 3.umferðar - Mirnes Smajlovic (Hvöt)
Leikmaður 2.umferðar - Ögmundur Rúnarsson (Grótta)
Leikmaður 1.umferðar - Árni Freyr Guðnason (ÍR)
Athugasemdir