Mbeumo gæti farið með Frank til Tottenham - Newcastle reynir við Joao Pedro - Hvert fer Leao?
   fim 12. júní 2008 16:29
Magnús Már Einarsson
2.deild: Leikmaður 5.umferðar - Tómas Joð Þorsteins (Afturelding)
Tómas fagnar marki gegn Magna fyrr í sumar.
Tómas fagnar marki gegn Magna fyrr í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Tómas heilsar upp á Hjalta Úrsus fyrir leikinn í fyrradag.
Tómas heilsar upp á Hjalta Úrsus fyrir leikinn í fyrradag.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Tómas sendir fyrir markið.
Tómas sendir fyrir markið.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Tómas Joð Þorsteinsson er leikmaður 5.umferðar í 2.deild karla en hann átti frábæran leik á vinstri kantinum þegar að Afturelding sigraði Hött 3-0 í fyrrakvöld. Tómas var síógnandi allan leikinn og skoraði auk þess mark frá miðju í fyrri hálfleiknum.

Tómas Joð Þorsteinsson
Tómas er 19 ára gamall vinstri kantmaður og bakvörður. Tómas hefur leikið með Fylki í yngri flokkunum en síðastliðið haust gekk hann upp úr öðrum flokki. Hann æfði einnig með unglingaliði Hull á Englandi á sínum tíma. Í vor gekk hann síðan til liðs við Aftureldingu.
,,Ég hélt að einhver annar sniðugur myndi ná að skora þrennu eða eiga stórleik fyrir sitt liðið og verða fyrir valinu en þetta kom alveg mjög skemmtilega á óvart að verða fyrir valinu. Það er alltaf gaman að fá viðurkenningar," sagði Tómas við Fótbolta.net í dag.

,,Ég tel að ég geti alveg fullyrt að þetta hafi verið besti leikurinn minn fyrir Aftureldingu en ég hef nú átt fjölmarga stórleiki fyrir Fylki og þegar ég bjó í Englandi."

Eins og fyrr segir skoraði Tómas frá miðju í leiknum gegn Hetti. ,,Ég hef nú aldrei skorað svona mark áður og ekki einu sinni reynt það, ég tók eftir því snemma í leiknum að markmaðurinn stóð oftast rétt fyrir utan vítateig sinn þannig að nokkrum mínútum áður en ég skoraði þá datt mér þetta í hug. Svo fékk ég boltann á miðjunni og leit eiginlega ekki einu sinni upp ég treysti frekar bara á að hann væri framarlega, svo skaut ég boltanum og horfði á eftir honum sigla í netið. Þetta er líka mjög skemmtilegt fyrir áhorfenduna á vellinum að fá svona óhefðbundin mörk."

Afturelding er í öðru sæti í annarri deildinni, með þrettán stig eins og topplið ÍR. ,,Liðið hefur byrjað mótið mjög vel, við höfum unnið 4 leiki af 5 og erum í öðru sæti í deildinni og það er frekar þétt leikjadagskrá núna þannig að ég er mjög ánægður og ég vona bara að við náum að fylgja þessum árangri eftir."

,,Persónulega er ég mjög sáttur með hvernig ég hef byrjað hjá Aftureldingu, þetta er frábær hópur af glæsilegum drengjum og æðislegur mórall hjá liðinu, það var vel tekið við mér hérna og ég hef náð að aðlagast hópnum mjög vel. Við erum núna búnir að vinna fjóra leiki í röð í deildinni og ég hef fulla trú á því að við munum halda áfram á sömu braut,"
sagði Tómas en markmiðin hjá Aftureldingu eru skýr.

,,Markmiðið í sumar er klárlega að fara upp um deild, við erum á góðri leið með það en það er mikið af góðum liðum í þessari deild sem gera tilkall um að fara upp í fyrstu deildina. Við munum berjast í sumar við Víði, ÍR, Hött, Hvöt og Reyni um að komast upp um deild. Markmiðið hjá mér er frekar einfalt en það er bara að skora fleiri mörk og reyna að standa mig sem best hjá Aftureldingu áður en ég fer aftur í Fylki eftir tímabilið."

Sjónvarpsmaðurinn Þorsteinn Joð er faðir Tómasar. Þorsteinn var á sínum tíma bakvörður en er Tómas betri leikmaður en karl faðir sinn var á sínum tíma?

,,Þetta er frekar erfið spurning, ég held ég verði að segja að hann hafi verið betri af því að ég er frekar blankur og má ekki við því að missa vasapeninginn minn. En að öllu gríni slepptu þá var hann frekar öðruvísi leikmaður en ég, ég er litli gæjinn sem hleypur mikið í leikjum og vill vera boltann en hann var meira sterki bakvörðurinn sem fannst ekkert skemmtilegra en að sparka menn niður og dúndra boltanum í burtu þegar hann fékk hann."

,,Hann átti samt þokkalegan feril þarna hjá Fram en hætti síðan snemma, það kemur bara í ljós þegar skórnir mínir fara á kommóðuna hvor var betri,"
sagði Tómas Joð Þorsteinsson, leikmaður 5.umferðar, að lokum við Fótbolta.net.

Sjá einnig:
Leikmaður 4.umferðar - Bojan Djordjevic (Víðir Garði)
Leikmaður 2.umferðar - Ögmundur Rúnarsson (Grótta)
Leikmaður 1.umferðar - Árni Freyr Guðnason (ÍR)
Athugasemdir
banner
banner