Milan Djurovic framherji Hamars er leikmaður ellefta umferðar á Fótbolta.net en hann lék á alls oddi í 3-1 útisigri liðsins á Hetti í gær. Djurovic skoraði eitt mark og gerði varnarmönnum Hattar lífið leitt allan leikinn.

Milan Djurovic er 26 ára gamall sóknarmaður sem kom til Íslands frá Serbíu árið 2002 Hann lék með Neista Hofsósi 2002 og 2003 en árið 2004 lék hann fyrri hluta tímabilsins með Neista og síðari hlutann með Tindastól. Hann fór síðan aftur í Neista árið 2005 en næstu tvö árin þar á eftir var hann á mála hjá Hvöt. Í vor yfirgaf hann síðan Hvöt og gekk til liðs við Hamar en hann hefur hann skorað fjögur mörk í annarri deildinni.
,,Ég fékk góða sendingu frá Stefáni (Daníeli Jónssyni) og var einn á móti markverðinum. Ég sá glufu við stöngina og skaut og skoraði sem var mjög ánægjulegt."
Hamarsmenn byrjuðu tímabilið ekki vel en liðið hefur sótt í sig veðrið að undanförnu og unnið góða sigra á Aftureldingu og Hetti í síðustu tveimur leikjum.
,,Hamar fékk marga nýja leikmenn í upphafi móts og við höfðum ekki spilað mikið saman. Við erum að spila betur saman með hverri æfingunni og ég held að síðari helmingur tímabilsins verði mun betri fyrir mig."
,,Í upphafi var ég ekki í mínu besta formi en það hefur verið að koma. Ég hef æft vel og er að komast í gott form," sagði Djurovic sem býst við að Hamar muni ganga betur í síðari umferðinni.
,,Við höfum mætt öllum liðunum í deildinni og núna þekkjum við öll liðin. Ég held að við munum enda í topp sex og við verðum pottþétt áfram í annarri deild."
Djurovic kom til Hamars frá Hvöt fyrir tímabilið og hann kann vel við sig hjá félaginu.
,,Mér líkar vel. fólkið í stjórninni er vingjarnlegt, þjálfarinn er góður og allir leikmennirnir eru góðir vinir. Það er góð liðsheild, það eru engar stjörnur og við erum eins og lið."
Djurovic er að leika sitt sjöunda tímabil á Íslandi en í framtíðinni vonast hann eftir að geta leikið í Landsbanka og fyrstu deildinni.
,,Ég er 26 ára gamall og í framtíðinni vil ég alltaf ná lengra og lengra. Ég byrjaði í þriðju deildinni á Hofsósi, þaðan fór ég í Tindastól og síðan í Hvöt."
,,Núna er ég í Hamar í annarri deild og kannski get ég spilað í fyrstu deildinni á næstu leiktíð og kannski í úrvalsdeildinni eftir tvö ár, ég vona það."
,,Allir segja að ég hafi hæfileika og að ég sé svo fljótur og að ég hafi ýmislegt en ég verð að sýna fólki það sem ég get," sagði Djurovic að lokum við Fótbolta.net.
Sjá einnig
Leikmaður 10.umferðar - Hallgrimur Mar Steingrímsson (Völsungi)
Leikmaður 9.umferðar - Baldvin Jón Hallgrímsson (ÍR)
Leikmaður 8.umferðar - Laszlo Szilagyi (Magni)
Leikmaður 7.umferðar - Paul Clapson (Afturelding)
Leikmaður 6.umferðar - Stefán Björn Aðalsteinsson (Völsungur)
Leikmaður 5.umferðar - Tómas Joð Þorsteinsson (Afturelding)
Leikmaður 4.umferðar - Bojan Djordjevic (Víðir Garði)
Leikmaður 3.umferðar - Mirnes Smajlovic (Hvöt)
Leikmaður 2.umferðar - Ögmundur Rúnarsson (Grótta)
Leikmaður 1.umferðar - Árni Freyr Guðnason (ÍR)
Athugasemdir