Mbeumo gæti farið með Frank til Tottenham - Newcastle reynir við Joao Pedro - Hvert fer Leao?
   þri 17. júní 2008 07:36
Magnús Már Einarsson
2.deild: Leikm. 6.umferðar - Stefán Björn Aðalsteins (Völsungur)
Stefán Björn í leiknum gegn Hetti.
Stefán Björn í leiknum gegn Hetti.
Mynd: Halli Sig
Stefán skýtur að marki í leik gegn Aftureldingu fyrr á leiktíðinni.
Stefán skýtur að marki í leik gegn Aftureldingu fyrr á leiktíðinni.
Mynd: Halli Sig
Mynd: Halli Sig
Mynd: Halli Sig
Stefán Björn Aðalsteinsson skoraði sigurmark Völsungs og átti góðan leik þegar að liðið lagði Hött 1-0 í annarri deildinni síðastliðinn laugardag. Stefán Björn hefur verið útnefndur leikmaður sjöttu umferðar í annarri deildinni hér á Fótbolta.net.

Stefán Björn Aðalsteinsson
Stefán Björn getur leikið í fremstu víglínu og á miðjunni en hann er uppalinn hjá Húsavík. Stefán lék með Boltafélagi Húsavíkur í þriðju deildinni árið 2005 en í ár hefur hann verið að stíga sín fyrstu skref með meistaraflokki Völsungs. Stefán, sem verður tvítugur síðar í mánuðinum, hefur skorað í undanförnum þremur leikjum Völsungs í annarri deildinni.
,,Já og nei," sagði Stefán léttur í bragði aðspurður hvort að þessi viðurkenning hafi komið á óvart.

,,Það er gott að það var tekið eftir því að maður er búin að vera að leggja sig allan fram og gaman að ná að skora í síðustu 3 leikjum. Ég var að gæla við það að setja 2-3 í næsta leik til að fá þennan heiður en þá hringdi síminn. Það er alveg rosalega gaman að vera valin og þetta mun vonandi bara efla mig og allt liðið því þeir eru örugglega fullir af stolti ef ég þekki þá rétt," sagði Stefán sem var ánægður með sigurinn á Hetti.

,,Ég var mjög sáttur. Langþráður sigur hja okkur þar sem mér fannst við eiga sigurinn svo sannarlega skilið. Við sóttum í fyrri hálfleik og vorum nokkuð hættulegir og greinilegt að við ætluðum okkkur ekkert annað en 3 stig."

,,Við bökkuðum aðeins of mikið í þeim síðari hálfleik en við börðumst allir sem einn og það kom bara aldrei til greina að leyfa þeim að jafna. Síðustu 10 mínúturnar í leikjum eru búnar að reynast okkur erfiðar en þarna gerðum við engin mistök."


Þetta var fyrsti sigurleikur Völsungs í annarri deildinni í sumar. ,,Ég spilaði aðeins einn hálfleik í fyrstu 3 leikjunum en það sem ég sá var alveg nokkuð gott þó ég hafi tekið eftir að það vantaði eitt stykki mig þarna inn."

,,Það er einnig heldur mikið að fá á sig 16 mörk í fyrstu 5 leikjum en náðum að halda hreinu síðast sem er frabært. Við vorum líka óheppnir og greinilegt að það átti ekkert að falla með okkur. En þetta er svona allt að koma sýnist mér og menn eru tilbúnir að gefa sig alla framm til þess að losa okkur burt frá fallsvæðinu og í efri hlutann, annars verður nú Jenni ekki sáttur."


Meðalaldurinn hjá Völsungi er rétt yfir 19 ár og því er liðið þónokkuð yngri en önnur lið í annarri deildinni en Stefán segir skemmtilegt að vera í þessum unga hóppi.

,,Það er alveg frábært, ég gæti ekki beðið um betri hóp til að spila með,toppmenn þessir kjánar. Mest allt strákar sem maður hefur alist upp með og þekkt síðan maður var bara lítið kríli. Það var kannski smá reynsluleysi í byrjun og svolítið um mistök en ef við berjumst eins og í síðasta leik þá hef ég engar áhyggjur."

,,Ég verð að lauma því að, að eftir svona 3-4 ár ef við höldumst saman..verðum við komnir í úrvalsdeildina, það leikur engin vafi á því,"
sagði Stefán sem setur markið á að enda í einu af efstu sex sætunum í sumar.

,,Ég sagði fyrir sumarið við vin minn að við mundum enda ofar en 6 sæti og ég tel það fínt markmið, það eru örugglega einhverjir sem halda að við munum bara falla en það er bara ekki séns að við verðum að berjast við fall í lok leiktíðar, kannski erfitt að segja að við munum fara upp eftir slaka byrjun en ég er mikill bjartsýnismaður og það er alveg séns. Annars vill ég bara að við sýnum hvað í okkur býr þrátt fyrir ungan aldur og náum okkur í reynslu og komum rosalegir aftur næsta sumar. Hvort sem það er í þessari eða 1.deild."

Næsta verkefni Völsungs er á sunnuadg en þá sækir liðið Víði Garði heim. ,,Ég er spenntur fyrir að sjá hvað gerist þar, verðum helst bara að gleyma síðasta leik og mæta brjálaðir til leiks, mjög auðvelt fyrir suma."

,,Við erum búnir að ferðast langar leiðir í sumar og koma heim með ekkert og það er komin tími til að breyta því. Þeim er búið að ganga fínt og var spáð að mig minnir ofarlega. Þetta verður erfiður leikur, en við höfum alveg það sem þarf til að sækja 3 stig,"
sagði Stefán Björn að lokum við Fótbolta.net.

Sjá einnig:
Leikmaður 5.umferðar - Tómas Joð Þorsteinsson (Afturelding)
Leikmaður 4.umferðar - Bojan Djordjevic (Víðir Garði)
Leikmaður 2.umferðar - Ögmundur Rúnarsson (Grótta)
Leikmaður 1.umferðar - Árni Freyr Guðnason (ÍR)
Athugasemdir
banner