
Jónas Hallgrímsson fyrrverandi þjálfari Völsungs fylgdist með í stúkunni og Hallgrímur tileinkaði honum markið.
Hallgrímur Mar Steingrímsson átti stórleik þegar Völsungur lagði Gróttu 3-1 í 10. umferð 2. deildar karla um helgina. Hann var mjög skapandi og hreyfanlegur og fór oft illa með leikmenn Gróttu. Hann skoraði eitt marka Völsungs í leiknum og bjó til hin tvö mörkin auk þess að sinna góðri varnarvinnu. Hallgrímur Mar er leikmaður 10. umferðar í 2. deild karla hér á Fótbolta.net.

Hallgrímur Mar Steingrímsson er 17 ára gamall og uppalinn í Völsungi.
Hann hóf feril sinn með meistaraflokki Völsungs á síðustu leiktíð er hann lék tvo leiki í 2. deildinni.
Á þessari leiktíð hefur hann leikið átta leiki í 2. deildinni auk eins leiks í bikarnum.
Það vakti mikla athygli í leiknum þegar Hallgrímur Mar hafði skorað mark sitt í leiknum að hann fór úr keppnistreyjunni og innanundir var hann í bol merktum ,,JÓNAS" inni í hjarta en þarna vísaði hann til Jónasar Hallgrímssonar sem hætti þjálfun liðsins í síðustu viku vegna dómgæslu.
,,Ég þurfti að gera eitthvað til að sýna honum minn stuðning í þessu máli sem hefur gengið á undanfarið og þakka honum fyrir það sem hann hefur gert fyrir okkur," sagði Hallgrímur. ,,Mér fannst mér þetta það svalasta sem ég gat gert. Ég held að það séu mjög fáir betri en hann. Fagnið og markið átti hann innilega skilið og hans á eftir að verða sárt saknað."
Hallgrímur Mar segist hafa fengið góð viðbrögð við þessu uppátæki sínu þegar hann fagnaði markinu . ,,Það hafa margir sagt að fagnið hafi verið stórkostlegt. Enginn ósáttur við þetta. það var allt kreyzí þegar ég fór útaf og er ég elskaður hérna á Húsavík," sagði hann í léttum tóni.
Sem fyrr sagði hætti Jónas Hallgrímsson með liðið í síðustu viku en á sama tíma kom hann fram í ítarlegu viðtali hér á Fótbolta.net þar sem hann útskýrði þessa ákvörðun sína að hætta. Hallgrímur var sammála Jónasi.
,,Það er flest allt rétt hjá honum í þessu viðtali. Ég er sammála honum með þetta og gríðalega ánægður með hann. Hann og Gaui Þórðar, toppmenn," sagði Hallgrímur.
Sveinbjörn Már Steingrímsson og Hrannar Björn Steingrímsson eru bræður Hallgríms og hafa báðir leikið með Völsungi í 2. deildinni í sumar. Hvernig er að vera með bræðrum sínum í liðinu?
,,Ég hef voða lítið spilað með þeim í sumar, þeir hafa verið meira og minna meiddir í nánast allt sumar og annar þeirra er í 3.flokk. Þetta var fyrsti leikurinn í sumar sem ég hef spilað með bróður mínum, þið sjáið hvernig það gekk," sagði hann og hló.
Með sigrinum á Gróttu lyfti Völsungur sér upp úr botnsæti deildarinnar og er nú í ellefta sæti með níu stig þegar tíu umferðir eru liðnar. Hallgrímur setur stefnuna enn ofar.
,,Miðað við stöðuna í deildini núna þá set markið á að lenda ofar 6. sæti. En ef við förum að spila okkar bolta í nánast hverjum leik þá gætum við vel verið ofar," sagði hann.
Völsungur á næst leik annað kvöld þegar liðið mætir Magna frá Grenivík í grannaslag. Gunnar Sigurður Jósteinsson og Jónas Halldór Friðriksson gengu í raðir Magna frá Völsungi fyrir tímabilið svo þarna mætir Hallgrímur gömlum félögum.
,,Mér líst bara mjög vel á þennan leik og kemur ekki neitt annað til greina en að taka þrjú stig frá Gunna og Jenna. þetta verður hörku leikur," sagði hann að lokum í samtali við Fótbolta.net í dag.
Sjá einnig
Leikmaður 9.umferðar - Baldvin Jón Hallgrímsson (ÍR)
Leikmaður 8.umferðar - Laszlo Szilagyi (Magni)
Leikmaður 7.umferðar - Paul Clapson (Afturelding)
Leikmaður 6.umferðar - Stefán Björn Aðalsteinsson (Völsungur)
Leikmaður 5.umferðar - Tómas Joð Þorsteinsson (Afturelding)
Leikmaður 4.umferðar - Bojan Djordjevic (Víðir Garði)
Leikmaður 3.umferðar - Mirnes Smajlovic (Hvöt)
Leikmaður 2.umferðar - Ögmundur Rúnarsson (Grótta)
Leikmaður 1.umferðar - Árni Freyr Guðnason (ÍR)
Athugasemdir