Mbeumo gæti farið með Frank til Tottenham - Newcastle reynir við Joao Pedro - Hvert fer Leao?
   fim 10. júlí 2008 12:05
Hörður Snævar Jónsson
2,deild: Leikmaður 3.umferðar - Mirnes Smjalovic (Hvöt)
Mirnes í leiknum gegn Hamar á þriðjudag.
Mirnes í leiknum gegn Hamar á þriðjudag.
Mynd: Fótbolti.net - Vilbogi M. Einarsson
Leikmann Hvatar fagna gegn Hamar.
Leikmann Hvatar fagna gegn Hamar.
Mynd: Fótbolti.net - Vilbogi M. Einarsson
Mirnes í leik gegn ÍH fyrr í sumar.
Mirnes í leik gegn ÍH fyrr í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Mirnes Smajlovic leikmaður Hvatar átti frábæran leik gegn Hamar á þriðjudaginn í 3. umferð 2. deildar karla en hann skoraði þrennu í leiknum. Þessi leikur fer síðar fram en aðrir leikir sökum þess að Grýluvöllur, heimavöllur Hamars var allur í grjóti þegar leikurinn átti að fara fram eftir skjálftana sem voru á Suðurlandi.

Mirnes Smjalovic
Mirnes er 26 ára gamall framherji sem gekk í raðir Hvatar fyrir þetta tímabil. Hann kemur frá Bosníu þar sem hann lék í 1. deild í heimalandinu en hann hefur verið að koma sterkur inn í lið Hvatar.
,,Ég var mjög ánægður með frammistöðu mína í leiknum," sagði Mirnes í samtali við Fótbolta.net í dag sem sagði að allt liðið hefði átt góðan leik.

,,Allt liðið var að spila vel og nýi þjálfarinn er að koma með jákvæða strauma inn í liðið og við erum á uppleið."

Hann var ánægður með mörkin sem hann skoraði. ,,Ég er ánægður með mörkin þrjú en það mikilvægasta er að liðið vann."

Leikur Hvatar hefur farið batnandi í síðustu tveimur leikjum. ,,Við höfum unnið tvo leiki núna og verðum bara betri með hverjum leiknum."

,,Vandamálið í byrjun var að það voru margir nýir leikmenn og ég kom líka seint og missti af tveimur leikjum en núna verður þetta betra."


Mirnes segir það erfitt að aðlagast lífinu hér á Íslandi eftir að hafa verið atvinnumaður í heimalandi sínu.

,,Þetta er mjög erfitt í byrjun því í heimalandi mínu þá spilaði ég sem atvinnumaður en núna þarf ég vinna og spila fótbolta en eftir einn mánuð þá hefur þetta komist í vana."

,,Við erum með mjög góða leikmenn en við vorum allir að kynnast í byrjun en eftir einn mánuð saman þá er þetta að verða betra,"
sagði Mirnes sem líkar vel á Blönduósi.

,,Blönduós er lítill bær en mér líkar vel hérna, ég kom hingað til Íslands því að vinur minn hringdi í mig og bað mig um hjálpa þessu liði á sínu fyrstu ári 2. deild."

Markmið hans er spila í Landsbankadeildinni á næstu leiktíð. ,,Mitt markmið er að spila í úrvalsdeildinni og vonandi eftir þetta tímabil mun það gerast," sagði Mirnes að lokum í samtal við Fótbolta.net.

Sjá einnig
Leikmaður 8.umferðar - Laszlo Szilagyi (Magni)
Leikmaður 7.umferðar - Paul Clapson (Afturelding)
Leikmaður 6.umferðar - Stefán Björn Aðalsteinsson (Völsungur)
Leikmaður 5.umferðar - Tómas Joð Þorsteinsson (Afturelding)
Leikmaður 4.umferðar - Bojan Djordjevic (Víðir Garði)
Leikmaður 2.umferðar - Ögmundur Rúnarsson (Grótta)
Leikmaður 1.umferðar - Árni Freyr Guðnason (ÍR)
Athugasemdir
banner