Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   lau 13. maí 2006 08:01
Magnús Már Einarsson
Spá fyrirliða og þjálfara í 1.deild karla: 1.sæti
Mynd: Fram
Fótbolti.net ætlar að fjalla vel um fyrstu deildina í sumar eins og undanfarin ár og við ætlum að hita vel upp með því að birta spá fyrirliða og þjálfara í deildinni fram að móti.

Við fengum alla fyrirliða og þjálfara til að spá og fengu liðin því stig frá 1-9 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í fimmta sætinu í þessari spá var Fram sem fékk 160 stig af 162 mögulegum og var langefst. Kíkjum á umfjöllun okkar um Fram


Fram
Þjálfari: Ásgeir Elíasson
Búningar: Blá treyja, hvítar buxur, bláir sokkar.
Heimasíða: http://www.fram.is

Það verður að segjast eins og er að það verður slys ef Fram nær ekki að komast strax aftur upp í úrvalsdeildina. Eftir að hafa bjargað sér frá falli í lokaumferðinni mörg ár í röð fór ský fyrir sólu í Safamýrinni í fyrra og Fram féll. Þrátt fyrir það snéri Helgi Sigurðsson aftur í bláa búninginn úr atvinnumennskunni og er ætlað að vera lykilmaður í því að félagið nái að snúa til baka í deild þeirra bestu.

Lið Fram var ekki talið slakt á pappírnum í úrvalsdeildinni í fyrra en liðið hefur haldið nánast öllum sínum leikmönnum síðan þá ef frá er talinn bakvörðurinn Gunnar Þór Gunnarsson sem er kominn í atvinnumennskuna í Svíþjóð. Hinn smái danski miðjumaður Hans Mathiesen verður áfram en hann var einn af fáum ljósum punktum í liðinu í fyrra. Refurinn Ásgeir Elíasson er tekinn við liðinu á nýjan leik, sumir vilja meina að það sé ekki skref í rétta átt en Ásgeir er væntanlega staðráðinn í því að sýna fram á annað.

Fram byrjaði af krafti á undirbúningstímabilinu og hrósaði sigri í Reykjavíkurmótinu. Í Deildabikarnum var liðið ekki eins sannfærandi en eins og allir vita er oft lítið mark hægt að taka á æfingamótunum. Fram er óneitanlega sigurstranglegasta lið deildarinnar og þarf eitthvað mikið að fara úrskeiðis ef liðið á ekki að komast upp.

Styrkleikar: Fram hefur mikla breidd og mikla reynslubolta í liðinu eins og Gunnar Sigurðsson, Jónas Grani Garðarsson, Ingvar Ólason og Helga Sigurðsson. Með einn besta markvörð landsins milli stanganna gæti reynst erfitt fyrir mótherjana að skora á Framliðið. Andri Fannar Ottóson ætti að geta gert varnarmönnum lífið leitt en framlínan er sterk með hann, Helga og Þorbjörn Atla Sveinsson.

Veikleikar: Framarar hafa verið sjálfum sér verstir og ljóst að hugarfar leikmanna hefur einfaldlega ekki verið rétt undanfarin ár. Fróðlegt verður að sjá hvort þeir verði með hausinn í lagi í 1. deildinni í sumar. Þá er liðið án heimavallar en það mun halda áfram að spila heimaleiki sína á Laugardalsvellinum þar sem þeir fá hinsvegar ekki að æfa. Erfitt er að skapa stemningu á vellinum og enn frekar nú í sumar þegar Fram fær færri áhorfendur á leiki sína en áður.

Lykilmenn: Gunnar Sigurðsson, Hans Mathiesen og Helgi Sigurðsson

Komnir: Jónas Grani Garðarsson frá FH, Freyr Karlsson frá Þrótti, Frank Posch frá Þýskalandi, Helgi Sigurðsson frá AGF, Jón Orri Ólafsson úr láni frá Aftureldingu.

Farnir: Þórhallur Dan Jóhannsson í Fylki, Gunnar Þór Gunnarsson til Hammarby, Ómar Hákonarson í Fjölni, Kristófer Sigurgeirsson í Fjölni, Bo Henriksen til ÍBV.


Spá fyrirliða og þjálfara:
1. Fram 160
2. Þór 131 stig
3. Þróttur 118 stig
4. HK 114 stig
5. KA 86 stig
6. Stjarnan 75 stig
7. Fjölnir 74 stig
8. Víkingur Ólafsvík 65
9. Leiknir 50 stig
10. Haukar 27 stig
Slapp
banner
banner
banner