|
Sérfræðingarnir sem spáðu eru: Atli Eðvaldsson, Ásgeir Elíasson, Guðmundur Hreiðarsson, Henry Birgir Gunnarsson, Hrafnkell Kristjánsson, Hörður Magnússon, Ólafur Kristjánsson, Víðir Sigurðsson, Þorlákur Árnason, Þorvaldur Örlygsson.
H vað segir Ólafur? Ólafur Helgi Kristjánsson er sérstakur álitsgjafi okkar um Landsbankadeild karla. Ólafur hefur séð mikið af leikjum á undirbúningstímabilinu og hefur gríðarmikla þekkingu á boltanum. Hann hefur starfað við þjálfun hér á landi hjá Fram og var í mörg ár aðstoðarþjálfari hjá AGF í Danmörku. Hér að neðan má sjá hans álit á FH.
Um FH FH er Íslandsmeistari og hefur verið sterkasta liðið undanfarin ár. Þeir ættu að verða sterkir áfram en ég set spurningamerki við að það eru farnir leikmenn eins og Allan, Heimir, Jónsi og Auðun meiddur. Þeir sem eru komnir eru Sigurvin sem þarf að bretta upp ermarnar og sýna sig og sanna í sumar. Hann er alltof góður leikmaður til að vera í þeirri meðalmennsku sem hann hefur verið í undanfarin ár.
Nýju Danirnir Allan Dyring og Peter Matzen. Dyring er góður leikmaður veit ég en Matzen er meira spurningamerki. Það sem mér finnst við FH-liðið er að það er enginn Allan Borgvardt lengur og enginn Heimir til að stjórna, ég býð eftir að sjá hver á að stjórna leiknum hjá FH. Ég sé ekki týpuna, Sigurvin gæti gert það.
Allan var markaskorari en hver á að skora mörkin í sumar? Tryggvi hefur getað gert það en það hvílir mikið á hans herðum í sóknarleiknum. Ef Allan Dyring getur gert hluta af því sem Allan Borgvardt gerði þá eru FHingar í góðum málum. FH er meira spurningamerki í ár en í fyrra, þá fannst mér þeir með algjört yfirburðarlið.
Styrkleikar: Styrkurinn er að þeir vita núna hvað það er að vinna. Þeir eru með sama þjálfara áfram, gríðarlega öfluga stjórn og stuðningsmenn. Yfirburðirnir verða kannski ekki eins miklir en þeir verða í toppbaráttunni.
Veikleikar Veikleikarnir eru þeir að ég sé ekki alveg stjórnandan auk þess sem þeir eru búnir að missa sinn helsta markaskorara undanfarin ár. Auk þess hefur Tommy Nielsen verið í meiðslum, Auðun er í meiðslum og óvíst hvort Sverrir komi til baka.
Gaman að fylgjast með Það er alltaf gaman að fylgjast með Tryggva, Guðmundi Sævarssyni sem er frábær bakvörður og bara gaman að fylgjast með þeim spila, erfitt að týna út einhvern einn og segja að hann sé betri en annar því þetta er mjög jafnt lið.
Svo eru það ungu strákarnir sem þeir eru með og búið að tala mikið um. Þegar þeir fá sénsinn verða þeir að sýna úr hverju þeir eru gerðir.
Lykilmaður Lykilmaður í FH-liðinu. Það er ljóst að Tommy Nielsen er algjör lykilmaður í þessu liði eins og staðan er núna. Daði og Tryggvi. Tryggvi þarf að halda áframa að skora eins og hann hefur alltaf gert og Tommy þarf að spila vel og losna við meiðsli. Hann stjórnar og bindur þetta lið aljörlega saman.
Ég segi enn og aftur að mér finnst vanta leiðtogann inn á miðjuna. Þar á Sigurvin að geta verið en ég vil að maður eins og Ásgeir Ásgeirsson hætti að verða efnilegur og verði góður. Hann hefur allt til þess að bera og hann er einn af þeim sem ég vil sjá springa út í sumar.
Þjálfarinn: Smiðurinn Ólafur Jóhannesson þjálfar FH þriðja árið í röð. Ólafur lék með FH í mörg ár og hefur áður þjálfað FH árin 1988-1991 og svo aftur árið 1995 þegar hann hætti á miðju tímabili. Ólafur hefur náð bestum árangri allra þjálfara með liðið. Fyrst er FH var nokkrum mínútum frá því að verða Íslandsmeistari 1989 en endaði í 2. sæti á eftir KA og svo hefur hann náð frábærum árangri með FH nú eftir að hann tók við liðinu í þriðja sinn árið 2003. Á fyrsta ári urðu þeir í öðru sæti deildarinnar, og hin tvö árin urðu FH-ingar Íslandsmeistarar og er spáð titlinum þriðja árið í röð. Ólafur hefur þjálfað fleiri lið hér á landi en hann kom Skallagrími í efstu deild fyrir nokkrum árum.
Líklegt byrjunarlið FH:
Völlurinn: FH leikur heimaleiki sína á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði. Völlurinn tekur 6738 áhorfendur en sæti eru í stúku og gegnt henni var svo komið fyrir miklum fjölda af sætum síðasta sumar svo heildarsætafjöldi er kominn í 2250. Auk þess er góð aðstaða fyrir áhorfendur fyrir aftan bæði mörkin og í stæðum og í heildina er Kaplakrikavöllur skráður til að geta tekið við 6738 áhorfendum. Grasið var tekið upp fyrir þremur árum..
Stuðningsmenn: Meðal þekktra stuðningsmanna FH eru Logi Ólafsson landsliðsþjálfari, Halli og Heiðar úr Botnleðju, Magnús Ólafsson leikari, Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður og útvarpsmaður, Árni Mathisen fjármálaráðherra, Hörður Magnússon sjónvarpsmaður, Guðmundur Árni Stefánsson alþingismaður, Björgvin Halldórsson söngvari, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra, Magnús Stefánsson þingmaður, Albert Eymundsson bæjarstjóri á Höfn, Tryggvi Harðarson bæjarstjóri á Seyðisfirði, Ólafur Þ. Harðarson Prófessor í stjórnmálfræði við HÍ, Ingvar Viktorsson fyrrum bæjarstjóri í Hfj.
| |
|
Um félagið |
|

Fimleikafélag Hafnarfjarðar Stofnað 1929, knattspyrnudeild stofnuð 1939.
Titlar: Deildarmeistarar 2002 og 2004 Íslandsmeistarar 2004
Búningar: Adidas
Aðalbúningur: Hvít treyja, svartar buxur, hvítir sokkar
Varabúningur: Blá treyja, bláar buxur, bláir sokkar
Opinber vefsíða: FH.is
Stuðningsmannasíða: FHingar.net |
|
Komnir og farnir |
| Nýjir frá síðasta sumri: |
Sigurvin Ólafsson frá KR Sverrir Garðarsson snýr aftur úr meiðslum um mitt sumar Allan Dyring frá Fredericia, Peter Matzen frá Danmörku, |
| Farnir frá síðasta sumri: |
Allan Borgvardt til Viking í Noregi Heimir Guðjónsson hættur Jón Þorgrímur Stefánsson til HK Dennis Michael Siim til Danmerkur Auðun Helgason verður frá keppni allt tímabilið vegna meiðsla Leifur Sigfinnur Garðarsson aðstoðarþjálfari til Fylkis Ólafur Þór Gunnarsson í Þrótt Birgir Jóhannsson í Fjölni á láni Jónas Grani Garðasson í Fram Sigmundur Pétur Ástþórsson í Fjölni á láni Jón Ragnar Jónsson í Þrótt á láni |
| Komnir til baka úr láni: |
Pétur Óskar Sigurðsson úr ÍBV Heimir Snær Guðmundsson úr ÍBV Atli Guðnason úr Fjölni Tómas Leifsson úr Fjölni |
|
Leikmenn FH |
| nr. |
Nafn |
Staða |
| 1. |
Daði Lárusson |
Markvörður |
| 2. |
Auðun Helgason |
Varnarmaður |
| 3. |
Peter Madzen |
Varnarmaður |
| 4. |
Tommy Nielsen |
Varnarmaður |
| 5. |
Freyr Bjarnason |
Varnarmaður |
| 6. |
Ásgeir Gunnar Ásgeirss |
Miðjumaður |
| 7. |
Davíð Þór Viðarsson |
Miðjumaður |
| 8. |
Baldur Bett |
Miðjumaður |
| 9. |
Tryggvi Guðmundsson |
Framherji |
| 10. |
Sigurvin Ólafsson |
Miðjumaður |
| 11. |
Allan Dyring |
Framherji |
| 12. |
Róbert Örn Óskarsson |
Markvörður |
| 13. |
Hjalti Brynjarsson |
Miðjumaður |
| 14. |
Guðmundur Sævarsson |
Varnarmaður |
| 15. |
Ármann Smári Björnsson |
Vörn/Sókn |
| 16. |
Pétur Óskar Sigurðsson |
Framherji |
| 17. |
Atli Viðar Björnsson |
Framherji |
| 18. |
Hermann Albertsson |
Varnarmaður |
| 19. |
Ólafur Páll Snorrason |
Framherji |
| 20. |
Sverrir Garðarsson |
Varnarmaður |
| 21. |
Atli Guðnason |
Framherji |
| 22. |
Matthías Vilhjálmsson |
Framherji |
| 23. |
Heimir Snær Guðmundsson |
Miðjumaður |
| 24. |
Haukur Ólafsson |
. |
| 25. |
Árni Freyr Guðnason |
Miðjumaður |
| 26. |
Tómas Leifsson |
Miðjumaður |
| 27. |
Hjörtur Logi Valgarðsson |
. |
| 28. |
Pétur Viðarsson |
. |
|
Leikir FH |
| Dags: |
Tími |
Leikur |
| 14. maí |
20:00 |
KR - FH |
| 21. maí |
20:00 |
Valur -FH |
| 25. maí |
20:00 |
FH - ÍA |
| 28. maí |
19:15 |
Fylkir - FH |
| 5. júní |
19:15 |
FH - Keflavík |
| 11. júní |
19:15 |
Breiðablik - FH |
| 15. júní |
19:15 |
FH - ÍBV |
| 22. júní |
19:15 |
Víkingur R. - FH |
| 28. júní |
19:15 |
FH - Grindavík |
| 6. júlí |
19:15 |
FH - KR |
| 16. júlí |
19:15 |
FH - Valur |
| 31. júlí |
19:15 |
ÍA - FH |
| 10. ágúst |
19:15 |
FH - Fylkir |
| 21. ágúst |
18:00 |
Keflavík - FH |
| 27. ágúst |
18:00 |
FH - Breiðablik |
| 10. sept |
14:00 |
ÍBV - FH |
| 17. sept |
14:00 |
FH - Víkingur R. |
| 23. sept |
14:00 |
Grindavík - FH | |