Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 11. maí 2007 08:00
Magnús Már Einarsson
Spá fyrirliða og þjálfara í 2.deild karla: 1. sæti
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Fótbolti.net ætlar að fjalla vel um aðra deildina í sumar eins og undanfarin ár og við ætlum að hita vel upp með því að birta spá fyrirliða og þjálfara í deildinni fram að móti.

Við fengum alla fyrirliða og þjálfara til að spá og fengu liðin því stig frá 1-9 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í efsta sætinu í þessari spá voru Haukar sem höfðu nokkra yfirburði og fengu 155 stig af 162 mögulegum. Kíkjum á umfjöllun okkar um Hauka.


Haukar
Búningar: Rauð treyja, rauðar buxur, rauðir sokkar.
Heimasíða: http://www.haukar.is

Haukum er spáð mikill velgengni á þessari leiktíð og skyldi engan undra. Spilamennska liðsins á undirbúningstímabilinu hefur verið hreint út sagt frábær en liðið mætir með svipað lið til leiks í ár og í fyrra. Eftir æsispennandi fallbaráttuslag þá var þar hlutskipti Hauka að falla í 2. deild í fyrra en þar ætla þeir ekki að staldra lengi við. Breytingar voru gerðar og var Andri Marteinsson ráðinn í stað Gústafs Adolfs Björnssonar en Andri hefur þjálfað yngri flokka Hauka undanfarin ár. Til að styrkja sig fyrir átökin í sumar fengu Haukar þá Goran Lukic og Þórhall Dan Jóhannsson til liðsins. Tveir öflugir leikmenn með mikla reynslu eiga að hjálpa hinu unga liði Hauka.

Einnig kom Ómar Freyr Rafnsson aftur til liðsins eftir skamma dvöl hjá ÍH. Þessir leikmenn eiga að fylla skörðin sem Hilmar Trausti Arnarsson, Albert Högni Arason og Jónmundur Grétarsson skildu eftir sig. Þeir léku stórt hlutverk á síðustu leiktíð en hafa allir ákveðið að leika í efri deildum Íslandsmótsins í sumar. Albert var fyrirliði liðsins á síðustu leiktíð en hann ákvað að söðla um og ganga í raðir Grindavíkur. Jónmundur Grétarsson sýndi lipra spretti í fremstu víglínu liðsins í fyrra en hann mun leika með Stjörnunni í sumar þar sem hann er uppalinn.

Að lokum hefur liðið misst einn af sínum uppöldu strákum, Hilmar Trausta Arnarsson, en hann gerði samning við Keflavík eftir síðustu leiktíð. Stóra spurningin er svo hvort Kristján Ómar Björnsson leiki með liðinu í sumar. Hann hefur verið til reynslu hjá Víkingi nú síðustu daga. Ef hann fer frá liðinu er ljóst að hann skilur stórt skarð eftir sig.

Þrátt fyrir að hafa misst nokkra leikmenn frá síðustu leiktíð er hópurinn ansi þéttur. Koma reynsluboltana Goran og Þórhalls hefur virkað sem vítamínssprauta fyrir liðið. Goran þekkir vel til hjá Haukum enda lék hann með liðinu áður en hann gekk í raðir Stjörnunnar. Þórhallur Dan ætti að vera flestum kunnugur en hann á glæstan feril að baki í Landsbankadeildinni þar sem hann varð tvívegis bikarmeistari með Fylki svo dæmi séu tekin.

Það hlýtur að vera stefna Hauka í sumar að fara strax aftur upp í 1. deild og miðað við spilamennsku liðsins í vetur er ljóst að það markmið er raunhæft. Margir sannfærandi sigrar hafa litið dagsins ljós og skemmst er að minnast 7-1 sigurs á úrvalsdeildarliði Víkings í apríl. Menn virðast samstilltir þar á bæ og liðið virkar afar öflugt miðað við vorleikina. En það eru ekki þeir sem telja heldur þessir 18 leikir sem leiknir verða í sumar. En það getur ekki boðað illt að hafa leikið jafn vel á undirbúningstímabilinu og raun ber vitni. Liðið vann sinn riðil sannfærandi í Lengjubikarnum en beið svo lægri hlut fyrir Aftureldingu, 4-0. Það er því spurning hvort Haukar séu að detta í lægð á versta tíma. Eitt tap segir lítið til um það en ljóst er að leikmenn liðsins þurfa að stilla strengi sína fyrir fyrsta leik sem verður nágrannaslagur gegn ÍH.

Styrkleikar: Góð blanda af reynsluboltum og efnilegum strákum. Liðið virkar afar öflugt fram á við með fljóta og kraftmikla stráka uppi á toppnum. Gæti reynst þeim vel að leika á gervigrasi í sumar í heimaleikjum sínum. Vörnin er mjög reynd með Þórhall Dan fremstan í flokki. Fyrir aftan vörnina stendur frábær markvörður, Amir Mehica.

Veikleikar: Miðsvæðið gæti orðið veikt hjá liðinu í sumar og sérstaklega í ljósi þess ef Kristján Ómar Björnsson ákveður að ganga í raðir Víkings. Skortir hraða á miðsvæðinu en það er farið að draga af Goran Lukic þrátt fyrir að hann sér afar öflugur fyrir liðið. Eftir frábært gengi í vetur er spurning hvernig liðið bregst við mótlæti ef illa árar í byrjun móts.

Lykilmenn: Þórhallur Dan Jóhannsson, Goran Lukic og Amir Mehica.

Þjálfari: Andri Marteinsson. Andri hefur þjálfað yngri flokka Hauka undanfarin ár en hann tók við meistaraflokknum síðastliðið haust. Andri sem er 41 árs er einn af leikjahæstu mönnum efstu deildar frá upphafi en hann lék yfir 200 leiki í deildinni með liðum eins og Fylki, KR, FH og Víkingi og þá lék hann einnig 20 A-landsleiki.


Komnir: Goran Lukic frá Stjörnunni, Ómar Freyr Rafnsson frá ÍH, Þórhallur Dan Jóhannsson frá Fylki.

Farnir: Hilmar Trausti Arnarsson í Keflavík, Ryan Mouter til Englands, Andri Janusson í Álftanes, Albert Högni Arason í Grindavík, Jónmundur Grétarsson í Stjörnuna, Guðjón Pétur Lýðsson í Breiðablik, Guðbjörn Alexander Sæmundsson í Álftanes.


Spá fyrirliða og þjálfara:
1. Haukar 155 stig
2. Selfoss 141 stig
3. Afturelding 127 stig
4. ÍR 123 stig
5. Höttur 87 stig
6. Völsungur 85 stig
7. KS/Leiftur 70 stig
8. ÍH 42 stig
9. Magni 37 stig
10. Sindri 33 stig
Slapp
banner
banner