Goran Brajkovic, fyrrum leikmaður HK, lést í bílslysi í heimalandi sínu Króatíu snemma í morgun.
Goran var 37 ára gamall þegar hann lést.
Goran spilaði á miðjunni með HK í efstu deild árið 2008 en hann kom við sögu í 14 leikjum.
Goran var 37 ára gamall þegar hann lést.
Goran spilaði á miðjunni með HK í efstu deild árið 2008 en hann kom við sögu í 14 leikjum.
Goran lék á ferli sínum í efstu deildum í Króatíu, Úkraínu og Slóveníu.
Hann spilaði með Rijeka í Króatíu, Arsenal Kiev í Úkraínu og Bela Kraijna í Slóveníu svo eitthvað sé nefnt.
2009 fór Goran til NK Opatija í króatísku D-deildinni en hann lék þar þangað til skórnir fóru upp á hillu í fyrra.
Árið 2001 spilaði Goran tvo leiki með A-landsliði Króatíu en hann spilaði einnig með U21 árs landsliðinu á sínum tíma.
Fótbolti.net sendir fjölskyldu hans og vinum dýpstu samúðarkveðjur.
Athugasemdir