Annar Íslendingurinn sem skorar í Meistaradeildinni
Íslenski landsliðsmaðurinn Alfreð Finnbogason skoraði fyrir Olympiakos gegn Arsenal en liðin eru að leika í Meistaradeildinni. Alfreð kom Olympiakos í 3-2 í leiknum en hann kom inn sem varamaður í leiknum.
Staðan var 2-1 fyrir Olympiakos þegar Alfreð kom inná. Alexis Sanchez jafnaði fyrir Arsenal á 65. mínútu en aðeins mínútu síðar tókst Alfreð að endurheimta forystuna, var réttur maður á réttum stað í markteignum eftir sendingu frá hægri.
Alfreð er aðeins annar Íslendingurinn sem skorar í Meistaradeild Evrópu á eftir Eiði Smára Guðjohnsen.
Alfreð gekk i raðir Olympiakos á lánssamningi frá Real Sociedad í sumar en hann náði ekki að stimpla sig inn hjá spænska félaginu á síðasta tímabili. Gríðarlega mikilvægt mark fyrir Íslendinginn.
Fylgst er með gangi mála í leiknum í úrslitaþjónustu á forsíðu.
Vísir hefur birt myndband af marki Alfreðs:
Athugasemdir