Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25102 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR02.09.2025, 06:00

Chilwell til Strasbourg (Staðfest)

Ben Chilwell er genginn til liðs við Strasbourg í Frakklandi frá Chelsea. Hann skrifar undir tveggja ára samning. Chilwell er 28 ára gamall vinstri bakvörður. Hann gekk til liðs við Chelsea frá Leicester fyrir 45 milljónir punda árið 2020. Hann náði sér ekki almennilega á skrið hjá Chelsea og var lánaður til Crystal Palace í febrúar.

FRÉTTIR01.09.2025, 22:45

Vardy til Cremonese (Staðfest)

Jamie Vardy er genginn til liðs við ítalska liðið Cremonese. Hann gerir eins árs samning en samningurinn verður framlengdur ef liðið heldur sér uppi í Seriu A.

FRÉTTIR01.09.2025, 21:54

Arsenal lánar Nelson til Brentford (Staðfest)

Reiss Nelson er genginn til liðs við Brentford á láni frá Arsenal. Brentford hefur einnig möguleika á því að kaupa hann. Nelson er 25 ára gamall vængmaður sem er uppalinn hjá Arsenal. Hann var á láni hjá Fulham á síðustu leiktíð þar sem hann kom við sögu í 12 leikjum og skoraði tvö mörk en meiðsli settu strik í reikninginn.

FRÉTTIR01.09.2025, 21:25

Nicolas Jackson kominn til Bayern (Staðfest)

Nicolas Jackson er genginn ti liðs við Bayern Munchen frá Chelsea. Hann fer á lán út tímabilið en Bayern mun síðan festa kaup á honum. Jackson er 24 ára gamall landsliðsmaður Senegal. Hann mun klæðast treyju númer 11 hjá Bayern. Bayern borgar rúmlega 70 milljónir punda í heildina samkvæmt Sky Sports.

FRÉTTIR01.09.2025, 21:17

Lammens til liðs við Man Utd (Staðfest)

Manchester United hefur staðfest kaupin á Senne Lammens, markverði Antwerp. Lammens er 23 ára gamall en Man Utd borgar rúmlega 18 milljónir punda fyrir hann.

FRÉTTIR01.09.2025, 21:11

Harvey Elliott til Aston Villa (Staðfest)

Aston Villa hefur nælt í Harvey Elliott á láni frá Liverpool. Villa mun festa kaup á honum fyrir 35 milljónir punda eftir tímabilið. Liverpool getur keypt hann til baka fyrir ákveðna upphæð og þá fær Liverpool einnig ákveðna upphæð ef Aston Villa selur hann annað síðar.

FRÉTTIR01.09.2025, 21:04

Wissa genginn til liðs við Newcastle (Staðfest)

Yoane Wissa er genginn til liðs við Newcastle frá Brentford. Newcastle greinir frá þessu í kjölfar sölunnar á Alexander Isak til Liverpool. Newcastle borgar 55 milljónir punda fyrir hann. Wissa skrifar undir fjögurra ára samning.

FRÉTTIR01.09.2025, 20:46

Sancho til Aston Villa á láni frá Man Utd (Staðfest)

Aston Villa hefur fengið Jadon Sancho á láni frá Man Utd út tímabilið. Aston Villa borgar óuppgefna upphæð til Man Utd og borgar 80 prósent af laununum hans samkvæmt heimildum Sky Sports.

FRÉTTIR01.09.2025, 20:34

Alexander Isak mættur til Liverpool (Staðfest) - Félagið bætir aftur met

Alexander Isak er genginn til liðs við Liverpool frá Newcastle. Liverpool borgar 125 milljónir punda fyrir hann en það gerir hann að dýrasta leikmanni úrvalsdeildarinnar. Liverpool bætti metið fyrr í þessum glugga þegar Florian Wirtz var keyptur til liðsins frá Leverkusen fyrir 116 milljónir punda.

FRÉTTIR01.09.2025, 19:49

Chukwueze til Fulham frá AC Milan (Staðfest)

Samuel Chukwueze er genginn til liðs við Fulham frá AC Milan. Fulham fær hann á láni út tímabilið með kaupmöguleika. Hann er 26 ára gamall vængmaður. Hann er nígerískur landsliðsmaður en hann hittir landsliðsfélaga sína Alex Iwobi og Calvin Bassey hjá Fulham. Hann mun klæðast treyju númer 19.

FRÉTTIR01.09.2025, 19:25

Kiwior til Porto og Vieira til Hamburg (Staðfest)

Pólski varnarmaðurinn Jakub Kiwior er genginn til liðs við Porto frá Arsenal. Um lánssamning er að ræða en Porto mun festa kaup á honum fyrir 24 milljónir punda eftir tímabilið.

FRÉTTIR01.09.2025, 19:02

Hincapie til Arsenal (Staðfest)

Arsenal hefur staðfest kaup á Piero Hincapie, varnarmanni Leverkusen. Hann kemur til liðsins á láni út tímabilið. Arsenal hefur síðan tækifæri á að kaupa hann fyrir 45 milljónir punda.

FRÉTTIR01.09.2025, 18:43

Rúnar Þór til Sönderjyske (Staðfest)

Rúnar Þór Sigurgeirsson er genginn til liðs við danska liðið Sonderjyske frá hollenska liðinu Willem II. Samningi hans við Willem II var rift svo hann fer til Sonderjyske á frjálsri sölu. Hann skrifar undir fjögurra ára samning við félagið.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.