Nzonzi kominn aftur til Stoke (Staðfest)
Miðjumaðurinn Steven Nzonzi er kominn aftur til Stoke City eftir tíu ára fjarveru úr enska boltanum.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25104 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Miðjumaðurinn Steven Nzonzi er kominn aftur til Stoke City eftir tíu ára fjarveru úr enska boltanum.
Burnley hefur staðfest félagaskipti Armando Broja frá Chelsea og er hann annar leikmaðurinn sem félagið kaupir úr röðum Chelsea á tveimur sólarhringum eftir kaup á Lesley Ugochukwu í fyrradag.
Brasilíski markvörðurinn Neto er kominn aftur heim til Brasilíu þar sem hann gerir tveggja ára samning við Botafogo með möguleika á hálfs árs framlengingu.
Leicester City hefur staðfest að félagið sé búið að selja miðjumanninn vinnusama Wilfred Ndidi til Besiktas í Tyrklandi. Kaupverðið er 8 milljónir punda. Hann hefur verið hjá Leicester síðan í janúar 2017 og vann FA-bikarinn og Samfélagsskjöldinn á tíma sínum hjá félaginu. Í yfirlýsingu Leicester segir að Ndidi hafi verið gríðarlega vinsæll meðal liðsfélaga, starfsmanna og stuðningsmanna. Ndidi er 28 ára og hefur leikið 66 landsleiki fyrir Nígeríu.
Galdur Guðmundsson er kominn með leikheimild með KR en hann er kominn til félagsins frá Horsens í Danmörku.
Aston Villa hefur framkvæmt sín fyrstu stóru leikmannakaup í þessum glugga en sóknarmaðurinn Evann Guessand er kominn til félagsins frá Nice í Frakklandi. Þessi 24 ára Fílabeinsstrendingur er keyptur á 26 milljónir punda en sú upphæð gæti hækkað upp í rúmlega 30 milljónir eftir ákvæðum.
Eliezer Mayenda hefur framlengt samning sinn við Sunderland til ársins 2030 en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins.
Ipswich Town hefur nælt í sænska landsliðsmanninn Jens Cajuste á láni frá Ítalíumeisturum Napoli út tímabilið.
Spænska félagið Villarreal hefur tilkynnt komu Thomas Partey til félagsins þvert gegn vilja stuðningsmanna félagsins sem höfðu engan áhuga á að fá hann.
Fram hefur fengið liðsstyrk fyrir lokasprettinn í Bestu deildinni því Sara Dögg Ásþórsdóttir er komin á láni frá Lengjudeildarliði Fylkis. Sara Dögg er fædd árið 2004. Hún er miðjumaður sem á að baki 82 KSÍ leiki og hefur skorað í þeim tíu mörk. Hún hefur hins vegar ekki spilað leik síðan í febrúar í fyrra.
Slóvakinn Martin Dubravka hefur gert eins árs samning við Burnley en hann kemur frá Newcastle United. Dubravka er 36 ára og lék alls 179 leiki í öllum keppnum fyrir Newcastle. Hann lék lykilhlutverk fyrir liðið þegar það vann deildabikarinn á síðasta tímabili.
Landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir hefur ákveðið að framlengja ekki samning sinn við West Ham. Hún kvaddi félagið með tárin í augunum í myndbandi á samfélagsmiðlum. Samningur Dagný við félagið er runnin út en henni bauðst að vera áfram. Hún ákvað hins vegar að semja ekki.
Thomas Müller er genginn til liðs við kanadíska félagið Vancouver Whitecaps sem leikur í bandarísku MLS-deildinni.
Tindastóll hefur fengið Guðrúnu Þórarinsdóttur á láni frá Breiðabliki út tímabilið.
Burnley hefur staðfest komu Lesley Ugochukwu til liðsins frá Chelsea. Hann skrifar undir fimm ára samning við nýliðana í úrvalsdeildinni. Fabrizio Romano segir að kaupverðið sé um 25 milljónir punda.
Heung-min Son hefur kvatt Tottenham en hann er farinn til LAFC í MLS deildinni í Bandaríkjunum eftir tíu ár hjá félaginu. Bandaríska félagið borgar 20 milljónir punda fyrir leikmanninn en hann er dýrasti leikmaður í sögu MLS-deildarinnar. Son gekk til liðs við Tottenham frá Leverkusen árið 2015. Hann spilaði 454 leiki og skoraði 173 mörk. Hann var gerður að fyrirliða árið 2023.
Marc Guiu, framherji Chelsea, er genginn til liðs við nýliða Sunderland út komandi tímabil. Guiu er níundi leikmaðurinn sem Sunderland fær til sín í sumar. Sunderland spilar í úrvalsdeildinni á komandi tímabili eftir að hafa komist upp í gegnum umspilið í Championship á síðasta tímabili. Guiu gekk til liðs við Chelsea frá Barcelona síðasta sumar. Hann kom við sögu í 16 leikjum í öllum keppnum á síðasta tímabili og skoraði sex mörk, öll í Sambandsdeildinni þar sem Chelsea stóð uppi sem sigurvegari.
Nottingham Forest hefur fengið skoska landsliðsmarkvörðinn Angus Gunn og skrifaði hann undir eins árs samning. Gunn lék 35 leiki í Championship-deildinni fyrir Norwich City á síðasta tímabili en yfirgaf félagið þegar samningur hans rann út í maí.
AC Milan hefur fengið til sín svissneska miðjumanninn Ardon Jashari frá Club Brugge í Belgíu. Hann er 23 ára og var bæði valinn besti leikmaðurinn og besti ungi leikmaðurinn í belgísku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. Hann gengur í raðir AC Milan fyrir um 37 milljónir evra og verður í treyju númer 30.
Leiknir Reykjavík hefur selt sóknarmanninn Stefan Bilic til serbneska félagsins Vozdovac í Belgrad. Stefan er 18 ára gamall og lék sína fyrstu meistaraflokksleiki á síðasta ári, þar sem hann kom við sögu í sjö leikjum í Lengjudeildinni.