Julien Stephan tekinn við QPR (Staðfest)
Frakkinn Julien Stephan er formlega tekinn við sem stjóri Queens Park Rangers. Liðið hafnaði í fimmtánda sæti Championship-deildarinnar.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25115 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Frakkinn Julien Stephan er formlega tekinn við sem stjóri Queens Park Rangers. Liðið hafnaði í fimmtánda sæti Championship-deildarinnar.
Baldvin Már Borgarsson er hættur sem þjálfari Árbæjar í 3. deildar. Þetta staðfestir hann í samtali við Fótbolta.net. Baldvin hefur ekki stýrt liðinu eftir að hann losnaði úr leikbanni á dögunum. Hann var dæmdur í fjögurra leikja bann eftir að hann lét ósæmileg orð falla í garð dómara. Hann baðst síðar afsökunar á því og sagðist ætla að læra af því.
Cagliari er búið að krækja í þrjá leikmenn í byrjun sumars sem léku allir á láni hjá félaginu á síðustu leiktíð. Tveir þeirra koma úr röðum Atalanta og einn frá Ítalíumeisturum Napoli.
Ítalska stórveldið Inter er búið að festa kaup á pólska kantmanninum Nicola Zalewski eftir að hafa leikið fyrir félagið á láni á seinni hluta síðustu leiktíðar.
Ítalska félagið Fiorentina hefur staðfest kaup á Alberti Guðmundssyni, sóknarleikmanni sem var hjá félaginu á lánssamningi frá Genoa á síðustu leiktíð.
Það hefur lítið gengið hjá FHL hingað til á tímabilinu en liðið er á botni Bestu deildarinnar án stiga þegar tíu leikir eru búnir. Það er núna framundan löng EM-pása en það er ljóst að tveir leikmenn munu yfirgefa félagið í þessari pásu. Það er Aida Kardovic, sem sleit krossband fyrr á tímabilinu, og Anna Hurley.
Víkingur hefur gefið út tilkynningu þess efnis að félagið ætli í þjálfarabreytingar í kvennaliði félagsins. Víkingur er í fallsæti núna þegar löng EM-pása hefst en þetta tímabil hefur verið mikil vonbrigði eftir frábær ár. Víkingur varð bikarmeistari 2023 og endaði í þriðja sæti Bestu deildar kvenna í fyrra.
Rob Edwards hefur verið ráðinn nýr stjóri Middlesbrough sem leikur í næst efstu deild Englands. Tekur hann við starfinu af Michael Carrick sem var rekinn eftir síðasta tímabil. Carrick hafði stýrt liðinu í þrjú tímabil og gert fínustu hluti.
Leeds United hefur fest kaup á varnarmanninum Jaka Bijol frá Udinese. Kaupverðið er 22 milljónir evra og hann skrifar undir fimm ára samning.
Paul Mullin, framherji Hollywood liðsins Wrexham, er genginn til liðs við Wigan á láni og mun spila fyrir liðið í C-deildinni á næstu leiktíð. Wrexham hafnaði í 2. sæti í C-deildinni og mun því spila í Championship deildinni á næstu leiktíð. Mullin er gríðarlega vinsæll hjá Wrexham en hann átti frábært tímabil þegar liðið fór upp úr utandeildinni. Hann skoraði 38 mörk í 46 leikjum. Þá skoraði hann 24 mörk í 38 leikjum í D-deildinni.
Nat Phillips er genginn til liðs við West Bromwich Albion, sem hafnaði í 9. sæti í Championship deildinni á síðustu leiktíð. Hann kemur frá Liverpool og skrifar undir þriggja ára samning en kaupverðið er ekki gefið upp. MIðvörðurinn var á láni hjá Derby á síðustu leiktíð þar sem hann lék 32 leiki. Hann gekk ungur að árum til Liverpool frá Bolton og fékk óvænt tækifæri með aðalliðinu tímabilið 2020-2021 og spilaði mikið vegna meiðslavandræða.
Crystal Palace hefur nælt í argentíska markmanninn Walter Benitez á frjálsri sölu frá PSV. Benitez er 32 ára ára en hann var aðalmarkvörður PSV þegar liðið vann hollensku deildina á síðustu leiktíð.
Bosníski framherjinn Edin Dzeko er genginn til liðs við Fiorentina frá tyrkneska félaginu Fenerbahce.
Lárus Orri Sigurðsson, fyrrum landsliðsmaður og sérfræðingur á Sýn Sport, mun taka við þjálfun ÍA út tímabilið. Félagið hefur staðfest þetta. ÍA er í neðsta sæti Bestu deildarinnar og var Jón Þór Hauksson látinn taka pokann sinn eftir tap gegn Aftureldingu í síðustu umferð.
Florian Wirtz er genginn til liðs við Liverpool frá Bayer Leverkusen. Liverpool borgar 116 milljónir punda fyrir hann. Wirtz skrifar undir fimm ára samning við enska félagið. Liverpool borgar í heildina 100 milljónir en kaupverðið getur hækkað um 16 milljónir punda eftir ákvæðum.
Úlfarnir hafa gengið frá kaupum á miðjumanninum Fer Lopez frá Celta Vigo. Hann kostar félagið 25 milljónir evra og verður þar með sjöundi dýrasti leikmaður í sögu félagsins.
Hinn 34 ára gamli Willy Boly verður áfram hjá Nottingham Forest á næstu leiktíð.
Championship félagið Bristol City er búið að ráða Gerhard Struber sem nýjan þjálfara eftir að Liam Manning yfirgaf félagið fyrr í mánuðinum.
Ítalska Serie A félagið Parma er búið að tilkynna ráðningu á nýjum aðalþjálfara. Sá kemur úr röðum Arsenal þar sem hann starfaði sem aðstoðarþjálfari Mikel Arteta.
Íslenski markvörðurinn Adam Ingi Benediktsson hefur verið kynntur hjá danska C-deildarfélaginu AB, sem kaupir hann frá Östersund. Adam Ingi, sem er 22 ára gamall, gekk í raðir IFK Gautaborg árið 2019 frá HK. Hann spilaði 12 leiki á tíma sínum hjá sænska úrvalsdeildarfélaginu, en gekk síðan í raðir Östersund á síðasta ári.