Liverpool gefst ekki upp á Isak - Newcastle vill Rashford - Gyökeres neitar að ræða við Sporting
   fim 19. júní 2025 09:56
Elvar Geir Magnússon
Adam Ingi kynntur hjá Íslendingaliðinu AB (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenski markvörðurinn Adam Ingi Benediktsson hefur verið kynntur hjá danska C-deildarfélaginu AB, sem kaupir hann frá Östersund.

Adam Ingi, sem er 22 ára gamall, gekk í raðir IFK Gautaborg árið 2019 frá HK. Hann spilaði 12 leiki á tíma sínum hjá sænska úrvalsdeildarfélaginu, en gekk síðan í raðir Östersund á síðasta ári.

Jóhannes Karl Guðjónsson er þjálfari AB en hann hefur verið sterklega orðaður við þjálfarastarfið hjá ÍA. Áhugavert er að í tilkynningu danska félagsins á íslenska markverðinum tjáir Jói Kalli sig um komu hans.

„Ég er spenntur fyrir því að fá Adam í klefann okkar. Við erum að fá markvörð sem er gríðarlega öflugur í teignum, kvikur á línunni og mikill íþróttamaður," segir Jóhannes Karl.

Markvörðurinn tók sér leyfi frá fótbolta í byrjun þessa tímabils, en snéri aftur rúmum mánuði síðar.

Fyrir hjá AB eru tveir íslenskir leikmenn; Ágúst Eðvald Hlynsson og Ægir Jarl Jónasson. AB átti frábæran endasprett í C-deildinni. Liðið vann sex af síðustu átta leikjum sínum og hafnaði í 4. sæti með 51 stig, átta stigum frá sæti í næst efstu deild.


Athugasemdir
banner