Arsenal gæti hætt við Sesko - Bayern í baráttuna um Gittens - Chelsea hyggst ekki selja Jackson
   mán 23. júní 2025 18:46
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Nat Phillips frá Liverpool til WBA (Staðfest)
Mynd: West Bromwich Albion
Nat Phillips er genginn til liðs við West Bromwich Albion, sem hafnaði í 9. sæti í Championship deildinni á síðustu leiktíð. Hann kemur frá Liverpool og skrifar undir þriggja ára samning en kaupverðið er ekki gefið upp.

MIðvörðurinn var á láni hjá Derby á síðustu leiktíð þar sem hann lék 32 leiki. Hann gekk ungur að árum til Liverpool frá Bolton og fékk óvænt tækifæri með aðalliðinu tímabilið 2020-2021 og spilaði mikið vegna meiðslavandræða.

Hann hefur hins vegar mikið verið á láni frá félaginu. Hann hefur verið hjá Stuttgart, Bournemouth, Celtic, Cardiff og nú síðast Derby.

„Um leið og ég heyrði af áhuga vildi ég koma hingað og byrja þetta. Ég ef oft farið á lán undanfarin ár og það er mjög gott fyrri mig og fjölskylduna mína að fara eitthvert og vita að við erum að vera vera hérna og þróa sambandið við félagið og stuðningsmennina," sagði Phillips.


Athugasemdir