Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   þri 24. júní 2025 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Middlesbrough búið að finna arftaka Carrick (Staðfest)
Rob Edwards.
Rob Edwards.
Mynd: EPA
Rob Edwards hefur verið ráðinn nýr stjóri Middlesbrough sem leikur í næst efstu deild Englands.

Tekur hann við starfinu af Michael Carrick sem var rekinn eftir síðasta tímabil. Carrick hafði stýrt liðinu í þrjú tímabil og gert fínustu hluti.

Hinn 42 ára gamli Edwards yfirgaf Luton í janúar síðastliðnum en hann kom liðinu upp í ensku úrvalsdeildina fyrir tímabilið 2023-24. Luton féll undir hans stjórn og féll svo aftur úr Championship-deildinni í ár.

Edwards var þó áfram eftirsóttur og er hann sagður hafa hafnað Bristol City til að taka við Middlesbrough.

Hann vann þá einnig baráttu við Steve Cooper og Danny Röhl hjá Boro.
Athugasemdir
banner