Napoli heillar Nunez - Barcelona gæti reynt við Rashford - Fenerbahce hefur áhuga á Sancho
   mið 25. júní 2025 09:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Baldvin Borgars hættur með Árbæ (Staðfest)
Baldvin Már Borgarsson.
Baldvin Már Borgarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Baldvin Már Borgarsson er hættur sem þjálfari Árbæjar í 3. deildar. Þetta staðfestir hann í samtali við Fótbolta.net.

Baldvin hefur ekki stýrt liðinu eftir að hann losnaði úr leikbanni á dögunum. Hann var dæmdur í fjögurra leikja bann eftir að hann lét ósæmileg orð falla í garð dómara. Hann baðst síðar afsökunar á því og sagðist ætla að læra af því.

Baldvin sagði við Fótbolta.net í gær að hann ætti inni nokkurra mánaða laun hjá Árbæ. Hann tjáði formanni Árbæjar að hann ætlaði ekki að mæta aftur til starfa fyrr en hann fengi allavega 60 prósent af þeirri upphæð sem félagið skuldaði sér.

Í kjölfarið hafa engin samskipti átt sér stað á milli Baldvins og félagsins, en hann hefur núna ákveðið að hætta sem þjálfari liðsins. Hann tjáði leikmönnum liðsins það seinni partinn í gær.

Árbær er sem stendur í 4. sæti 3. deildar með 14 stig úr níu leikjum. Liðið mætir Sindra í Fótbolti.net bikarnum í kvöld.

Baldvin var áður aðstoðarþjálfari Ægis í Þorlákshöfn.
Athugasemdir
banner