Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   þri 24. júní 2025 19:56
Ívan Guðjón Baldursson
Fiorentina kaupir Albert (Staðfest)
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Ítalska félagið Fiorentina hefur staðfest kaup á Alberti Guðmundssyni, sóknarleikmanni sem var hjá félaginu á lánssamningi frá Genoa á síðustu leiktíð.

Albert, sem er 28 ára gamall, átti erfitt uppdráttar með Fiorentina þar sem hann kom að 11 mörkum í 33 leikjum á leiktíðinni. Hann lenti í leiðinlegum meiðslum á tímabilinu eftir að hafa leikið á alls oddi með Genoa leiktíðina þar á undan.

Albert lék með Fiorentina á lánssamningi frá Genoa með 19 milljón evru kaupmöguleika. Fiorentina tókst að lækka verðmiðann niður í 13 milljónir í sumar.

Fiorentina greiðir því um 20 milljónir evra í heildina fyrir Albert, eftir að hafa borgað um 8 milljónir til að fá hann lánaðan.

Stefano Pioli nýr þjálfari Fiorentina er spenntur fyrir að nota Albert í fremstu víglínu á næstu leiktíð ásamt hinum þaulreynda Edin Dzeko sem er nýkominn til félagsins.


Athugasemdir
banner