Florian Wirtz er genginn til liðs við Liverpool frá Bayer Leverkusen. Liverpool borgar 116 milljónir punda fyrir hann. Wirtz skrifar undir fimm ára samning við enska félagið.
Liverpool borgar í heildina 100 milljónir en kaupverðið getur hækkað um 16 milljónir punda eftir ákvæðum.
Liverpool borgar í heildina 100 milljónir en kaupverðið getur hækkað um 16 milljónir punda eftir ákvæðum.
Hann er því dýrasti leikmaður í sögu úrvalsdeildarinnar en Chelsea keypti Enzo Fernandez fyrir 107 milljónir punda frá Benfica árið 2023.
Wirtz hefur verið hjá Leverkusen allan sinn ferill en hann skoraði 10 mörk og lagði upp 12 á síðasta tímabli þegar liðið hafnaði í 2. sæti. Hann var besti leikmaður deildarinnar þegar Leverkusen varð deildar og bikarmeistari í fyrra.
„Ég er mjög spenntur fyrir nýja ævintýrinu sem er fyrir framan mig. Þetta var mér ofarlega í huga, að fá eitthvað glænýtt, að fara úr þýsku deildinni og fara í úrvalsdeildina," sagði Wirtz.
„Ég vil vinna allt á hvejru ári. Fyrst og fremst verðum við að vinna okkar vinnu. Við unnum úrvlasdeildina í fyrra svo mitt markið er að vinna hana aftur og fara lengra í Meistaradeildinni."
From Leverkusen to Liverpool ???? pic.twitter.com/ZGwv3cJysi
— Liverpool FC (@LFC) June 20, 2025
Athugasemdir