Hinn 34 ára gamli Willy Boly verður áfram hjá Nottingham Forest á næstu leiktíð.
Boly hefur verið hjá Forest í þrjú ár og voru ekki margir utanaðkomandi sem bjuggust við að félagið myndi semja aftur við hann sérstaklega í ljósi komandi átaka næstu leiktíðar.
Forest mun taka þátt í Evrópukeppni í fyrsta sinn í langan tíma og því gætu skapast fleiri tækifæri fyrir Boly til að spila, en hann kom aðeins við sögu í 9 leikjum á síðustu leiktíð.
Boly er hávaxinn miðvörður sem lék fyrir Wolves áður en hann gekk til liðs við Forest. Ástæðan fyrir því að Forest er að semja við leikmanninn er ekki útaf því sem hann getur gert fyrir félagið innan vallar, heldur utan.
„Willy er reynslumikill leikmaður sem bætir miklu við leikmannahópinn okkar. Við erum ánægðir með að hann hafi samþykkt nýjan samning," segir Ross Wilson, yfirmaður fótboltamála hjá Forest.
„Hann býr yfir gríðarlega miklum metnaði og sigurvilja og er virkilega mikilvægur partur af hópnum okkar. Hann hefur mikla leiðtogahæfileika og er límið í hópnum hjá okkur. Hann talar mörg tungumál og tengir leikmannahópinn saman. Hann hjálpar öllum í kringum sig og er ómissandi hluti af þessu fótboltafélagi."
We are pleased to confirm that Willy Boly has signed a new contract, extending his stay on Trentside until the summer of 2026. ????
— Nottingham Forest (@NFFC) June 19, 2025
Athugasemdir