Juventus berst við Napoli um Sancho - Slot hefur áhuga á Guehi - Man Utd horfir til Ítalíu
   lau 21. júní 2025 11:00
Brynjar Ingi Erluson
Edin Dzeko til Fiorentina (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bosníski framherjinn Edin Dzeko er genginn til liðs við Fiorentina frá tyrkneska félaginu Fenerbahce.

Dzeko er 39 ára gamall og á margar góðar minningar frá Ítalíu, en hann skoraði 107 deildarmörk með Inter og Roma frá 2015 til 2023.

Samningur Dzeko hjá Fenerbahce átti að renna út um mánaðamótin og ákvað Fiorentina að taka sénsinn á honum þrátt fyrir aldur hans.

Fiorentina staðfesti í gær að Dzeko hafi skrifað undir eins árs samning með möguleika á eins árs framlengingu.

Dzeko er í 78. sæti yfir markahæstu leikmenn Seríu frá upphafi og einn af 92 leikmönnum sem hafa skorað 100 mörk eða meira í deildinni.

Fiorentina hafnaði í 6. sæti deildarinnar á síðustu leiktíð og tryggði sér enn eitt árið sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu, en liðið hefur tvisvar komist í úrslit keppninnar frá því hún var sett á laggirnar fyrir fjórum árum.


Athugasemdir
banner