Tareq Shihab frá Gróttu í HK (Staðfest)
HK hefur gengið frá samningum við Tarek Shihab en hann kemur til félagsins frá Gróttu.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25143 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
HK hefur gengið frá samningum við Tarek Shihab en hann kemur til félagsins frá Gróttu.
FH hefur fengið Ingimar Torbjörnsson Stöle á láni frá KA út þetta tímabil.
Fjölnir hefur kallað sóknarmanninn Rafael Mána Þrastarson til baka úr láni frá Vængjum Júpiters.
Miðjumaðurinn Ásgeir Frank Ásgeirsson mun klára tímabilið með Aftureldingu í Lengjudeildinni, en hann fær félagaskipti úr Hvíta riddaranum.
FH hefur styrkt sig fyrir lokakafla tímabilsins en finnski bakvörðurinn Anna Nurmi er komin til félagsins frá Breiðabliki.
Það hefur verið nóg að gera hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Manchester United í kvöld en það var rétt í þessu að kynna kaupin á Noussair Mazraoui frá Bayern München.
Manchester United hefur tilkynnt kaupin á hollenska varnarmanninum Matthijs De Ligt en hann kemur frá Bayern München fyrir 43 milljónir punda.
Danski miðjumaðurinn Matthias Præst hefur skrifað undir þriggja ára samning við KR en hann mun formlega ganga í raðir félagsins frá Fylki eftir tímabilið.
RB Leipzig hefur staðfest kaupin á norska landsliðsmanninum Antonio Nusa en hann kemur frá Club Brugge í Belgíu.
Bournemouth hefur keypt mexíkóska bakvörðinn Julian Araujo frá Barcelona en kaupverð er ekki gefið upp. Þessi 23 ára leikmaður fór til Barcelona síðasta sumar en var strax lánaður til Las Palmas þar sem hann lék 25 leiki í La Liga.
Leiknir staðfesti rétt í þessu að félagið væri búið að semja við Dusan Brkovic um að leika með liðinu. Dusan er gífurlega reynslumikill serbneskur miðvörður sem hefur leikið á Íslandi undanfarin ár, fyrst með KA í þrjú tímabil og svo með FH á þessu tímabili.
Marcelo Deverlan, 24 ára Brasilíumaður, er genginn í raðir Njarðvíkur og skrifar undir samning sem gildir út tímabilið 2025. Hann er varnarmaður, hafsent, sem hefur spilað í Brasilíu nánast allan sinn feril. Hann var í Red Bull Bragantino en hefur einnig verið á mála hjá Corinthians og Livorno á Ítalíu. Hann lék í vetur með Trofense í portúgölsku C-deildinni.
Grindavík hefur fengið liðsstyrk fyrir lokasprettinn á tímabilinu því Ármann Ingi Finnbogason er kominn á láni frá ÍA. Ármann er tvítugur miðjumaður sem er samningsbundinn ÍA út næsta tímabil. Hann hefur komið við sögu í átta leikjum í Bestu deildinni og einum leik í bikarnum.
Miðjumaðurinn Jón Breki Guðmundsson er genginn í raðir ÍA frá KFA. Hann er kominn með leikheimild með ÍA fyrir komandi leik gegn Víkingi næsta mánudag. Jón Breki er fæddur árið 2008 og kom við sögu í tólf leikjum í 2. deild karla í sumar, einum leik í Mjólkurbikarnum og tveimur í Fótbolti.net bikarnum. Fyrsti deildarleikur hans kom á síðasta tímabili. Hann var skráður í Þrótt Neskaupstað.
Hægri bakvörðurinn Aaron Wan-Bissaka er genginn í raðir West Ham frá Manchester United. Verið var að staðfesta þessi félagaskipti. West Ham borgar um 15 milljónir punda fyrir Wan-Bissaka. Hann skrifar undir sjö ára samning við Lundúnafélagið.
Franska félagið Olympique de Marseille hefur staðfest kaup á argentínska markverðinum Gerónimo Rulli sem kemur úr röðum Ajax.
Valur hefur keypt hinn 27 ára gamla Albin Skoglund frá sænska B-deildarfélaginu Utsiktens BK og er hann þegar kominn með leikheimild með félaginu.
Enska úrvalsdeildarfélagið Brentford er búið að festa kaup á portúgalska sóknartengiliðnum Fábio Carvalho sem kemur úr röðum Liverpool.
Borussia Dortmund er að ganga frá kaupum á Maximilian Beier, 21 árs sóknarleikmanni Hoffenheim.
Brasilíski bakvörðurinn Emerson Royal er að skipta yfir til AC Milan fyrir um 15 milljónir evra.