Almeyda rekinn eftir enn eitt tapið (Staðfest)
Spænska stórliðið Sevilla er búið að reka þjálfarann Matías Almeyda eftir óviðunandi árangur á tímabilinu.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25092 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Spænska stórliðið Sevilla er búið að reka þjálfarann Matías Almeyda eftir óviðunandi árangur á tímabilinu.
Norska félagið Vålerenga hefur ákveðið að festa kaup á Kolbeini Birgi Finnssyni sem hefur verið að gera góða hluti með liðinu á láni frá Utrecht.
Viktor Nói Viðarsson er genginn í raðir FH frá Gent í Belgíu og skrifar hann undir tveggja ára samning við Fimleikafélagið. Viktor, sem er átján ára gamall, er sonur Arnars Þórs Viðarssonar fyrrum landsliðsþjálfara Íslands. Hann hefur búið alla ævi í Belgíu og hefur hann spilað fyrir yngri landslið Belga þar sem hann var meðal annars fyrirliði. Fyrir rúmu ári síðan valdi hann að spila fyrir Ísland og hefur hann leikið níu leiki fyrir U19 landsliðið.
Lengjubikarmeistararnir í Fylki eru búnir að finna markvörð sem mun koma til með að veita Ólafi Kristófer Helgasyni samkeppni í sumar því Kristóer Leví Sigtryggsson (2000) er mættur aftur í Árbæinn. Kristófer Leví þekkir vel til í Árbænum eftir að hafa verið á mála hjá félaginu á árunum 2019-21. Hann kemur frá Grindavík þar sem hann lék síðustu tvo leikina í fyrra og hjálpaði liðinu að halda sæti sínu í deildinni.
Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar. Listinn er gríðarlega fjölbreyttur.
Hinn 41 árs gamli Birkir Már Sævarsson hefur skrifað undir samning við Aftureldingu og mun spila með liðinu í Lengjudeildinni á næsta tímabili. Það þarf ekki að kynna þennan reynslumikla leikmann fyrir þjóðinni en hann spilaði 103 landsleiki og er fjórði leikjahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi. Hann spilaði með landsliðinu á EM í Frakklandi árið 2016 og HM í Rússlandi árið 2018.
Njarðvík stefnir upp úr Lengjudeildinni í sumar og var að bæta öflugum varnarleikmanni við hópinn sinn.
Emil Skúli Einarsson er búinn að gera samning við Gróttu. Hann skiptir yfir á Seltjarnarnes eftir að hafa leikið fyrir Þrótt R. allan ferilinn.
Eyrún Vala Harðardóttir hefur rift samningi sínum við Fram og mun ekki leika með liðinu í sumar. <i>„Takk kærlega fyrir allt Fram,"</I> skrifar hún á samfélagsmiðla.
Miðvörðurinn Kristín Sara Arnardóttir hefur undirritað samning við Lengjudeildarlið Gróttu og mun leika með liðinu á láni frá Breiðabliki út næst komandi tímabil. Kristín Sara, sem er 18 ára gömul, lék með Fjölni á síðustu leiktíð, alls 16 leiki í Íslandsmóti 2. deildar, en tekur nú skrefið upp í Lengjudeildina.
Gabríel Aron Sævarsson hefur verið lánaður til 2. deildar liðs Hauka fyrir komandi tímabil. Þetta kemur fram í tilkynningu Breiðabliks á samfélagsmiðlum í dag. Gabríel Aron er sóknarmaður sem fæddur er 2006. Gabríel gekk til liðs við Breiðablik frá Keflavík síðastliðið sumar og var við sama tilefni lánaður til Lengjudeildarliðs ÍR.
Það voru berast frábær tíðindi til stuðningsmanna Aftureldingar því Elmar Kári Enesson Cogic hefur framlengt samning sinn við Aftureldingu út tímabilið 2027. Fyrri samningur hefði runnið út eftir komandi tímabil. Elmar Kári (2002) lék frábærlega í Lengjudeildinni 2023 og 2024 og reyndi ÍA að kaupa hann af grönnum sínum í vetur. Meiðsli settu strik í reikninginn á síðasta tímabili og náði Elmar ekki að sýna sitt besta í Bestu deildinni.
Andri Fannar Stefánsson er kominn með félagaskipti til Magna og má spila með liðinu í kvöld þegar Magni heimsækir Dalvík/Reyni í Mjólkurbikarnum. Andri (1991) er reynslubolti sem hætti að spila með liði KA síðasta haust. Hann er uppalinn hjá KA og lék einnig með Val á sínum ferli.
Sindri Kristinn Ólafsson er búinn að semja við Vasalund í Svíþjóð eftir að hafa verið aðalmarkvörður hjá Keflavík og FH í íslenska boltanum.
Heimir Hallgrímsson, þjálfari írska landsliðsins, greindi frá því á fréttamannafundi írska landsliðsins í dag að hann væri búinn að framlengja samning sinn írska sambandið fram að EM 2028 sem m.a. verður haldið á Írlandi. Eyjamaðurinn hefur gert vel með írska landsliðið, liðið á möguleika á sæti á HM en framundan er umspilsleikur gegn Tékkum. Ef sá leikur vinnst fer Írland í úrslitaleik um sæti á HM gegn Danmörku eða Norður-Makedóníu.
Grindavík í Lengjudeildinni hefur samið við Heiðar Snær Ragnarssson og semur hann til tveggja ára.
Luis Alberto Rodriguez Quintero er genginn í raðir Þorláks í 5. deildinni. Luis lék með liðinu í Boladeildinni fyrir fjórum árum síðan en hefur nú fengið varanleg félagaskipti í Þorlák. Þorlákur er að styrkja raðirnar fyrir komandi tímabil í 5. deildinni en liðið endaði í 5. sæti í B-riðli í fyrra.
Pétur Rögnvaldsson hefur verið rekinn sem þjálfari kvennaliðs HK. Í tilkynningu félagsins segir að Pétur hafi gerst sekur um brot á siðareglum HK.
Eyþór Örn Eyþórsson er genginn til liðs við Reyni en hann kemur til liðsins frá KFG. Hann hefur þegar spilað fimm leiki fyrir Reyni í Lengjubikarnum. Hann mun spila með liðinu í 3. deild í sumar.
Afturelding hefur staðfest komu norska framherjans Joacim Holtan en hann semur út 2026.