Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
   fös 20. mars 2026 11:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Andri Fannar í Magna (Staðfest) - Má spila í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Andri Fannar Stefánsson er kominn með félagaskipti til Magna og má spila með liðinu í kvöld þegar Magni heimsækir Dalvík/Reyni í Mjólkurbikarnum.

Andri (1991) er reynslubolti sem hætti að spila með liði KA síðasta haust. Hann er uppalinn hjá KA og lék einnig með Val á sínum ferli.

„Í sumar náði Andri Fannar þeim merka áfanga að spila 200 leiki í efstu deild. Hann lék alls 186 leiki fyrir KA í deild, bikar, meistarakeppni KSÍ og Evrópukeppni og skoraði í þeim 13 mörk," sagði í tilkynningu KA þegar ljóst varð að Andri yrði ekki áfram leikmaður liðsins síðasta haust.

Andri varð bikarmeistari með KA sumarið 2024.

Leikur Dalvíkur/Reynis og Magna hefst klukkan 21:00 og fer fram í Boganum vegna veðurs.

Andri Fannar er fimmti leikmaðurinn sem Magni hefur fengið í vetur eftir að liðið fór upp úr 3. deildinni. Guðni Sigþórsson sneri heim frá Þrótti Vogum, Haukur Leó Þórðarson og Pétur Orri Arnarson komu frá Þór og Ólafur Jóhann Steingrímsson kom frá Húsavík og spilar fyrir bróður sinn, Guðmund Óla sem þjálfar Magnaliðið.

Athugasemdir
banner
banner