Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
   fös 20. mars 2026 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Grótta fær unglingalandsliðskonu frá Blikum (Staðfest)
Rakel Lóa framlengdi
Kvenaboltinn
Kristín Sara mætt í Gróttu.
Kristín Sara mætt í Gróttu.
Mynd: Breiðablik
Mynd: Grótta
Miðvörðurinn Kristín Sara Arnardóttir hefur undirritað samning við Lengjudeildarlið Gróttu og mun leika með liðinu á láni frá Breiðabliki út næst komandi tímabil.

Kristín Sara, sem er 18 ára gömul, lék með Fjölni á síðustu leiktíð, alls 16 leiki í Íslandsmóti 2. deildar, en tekur nú skrefið upp í Lengjudeildina.

Kristín Sara lék sinn fyrsta leik með Gróttu í gær, þegar hún skoraði seinna mark liðsins í 2-2 jafntefli gegn Haukum í Lengjubikarnum.

Hún á að baki þrjá leiki með U17, leikina spilaði hún sumarið 2024.

„Við hlökkum til að fylgjast með Kristínu Söru í sumar. Gangi þér vel," segir í tilkynningu Breiðabliks.

Lykilmaður framlengdi
Fyrr í þessum mánuði skrifaði Rakel Lóa Brynjarsdóttir undir nýjan samning við Gróttu. Hún er nú samningsbundin út tímabilið 2027.

Úr tilkynningu Gróttu
Rakel er fædd árið 2004 og er uppalin Gróttukona. Hún lék sinn fyrsta meistaraflokksleik árið 2019, þá 15 ára gömul, og lék með liðinu í þrjú tímabil áður en hún gekk til liðs við Stjörnuna. Hún spilaði með Garðbæingum og með HK á láni sumarið 2022 en sneri aftur í Gróttu fyrir sumarið 2023 og hefur verið lykilmanneskja í hjarta varnarinnar síðustu leiktíðir.

Dominic, þjálfari Gróttu, fagnar því að Rakel hafi enn á ný samið við uppeldisfélagið: „Það er frábært fyrir okkur að enn annar leikmaður úr kjarna hópsins hefur ákveðið að framlengja hjá félaginu. Rakel er gríðarlega annt um hópinn sem er mikill fengur fyrir okkur, ásamt því sem hún hefur fram að færa inni á vellinum.”

Rakel er spennt fyrir sumrinu: „Það er alltaf gaman að framlengja við uppeldisfélagið sitt og er ég mjög spennt fyrir komandi tímum hjá Gróttu. Ég vil sjá sem flesta á vellinum í sumar! Lofa góðri skemmtun.”
Athugasemdir
banner
banner