Pétur Rögnvaldsson hefur verið rekinn sem þjálfari kvennaliðs HK. Í tilkynningu félagsins segir að Pétur hafi gerst sekur um brot á siðareglum HK.
HK hefur verið á fullu að undirbúa sig fyrir komandi tímabil í Lengjudeildinni og var liðið í æfingaferð á Spáni fyrir stuttu. Það er stutt í komandi keppnistímabil.
Pétur tók við HK fyrir tímabilið í fyrra og var HK mjög nálægt því að fara upp um deild. Áður var hann þjálfari Gróttu og gerði þar flotta hluti.
Tilkynning HK
Pétur Rögnvaldsson þjálfari meistaraflokks kvenna í knattspyrnu og HK hafa komist að samkomulagi um starfslok í kjölfar þess að hann gerðist sekur um brot á siðareglum félagsins. Pétur hefur þegar látið af störfum og óskum við honum velfarnaðar.
Athugasemdir




