Luis Alberto Rodriguez Quintero er genginn í raðir Þorláks í 5. deildinni. Luis lék með liðinu í Boladeildinni fyrir fjórum árum síðan en hefur nú fengið varanleg félagaskipti í Þorlák.
Þorlákur er að styrkja raðirnar fyrir komandi tímabil í 5. deildinni en liðið endaði í 5. sæti í B-riðli í fyrra.
Þorlákur er að styrkja raðirnar fyrir komandi tímabil í 5. deildinni en liðið endaði í 5. sæti í B-riðli í fyrra.
Úr tilkynningu Þorláks:
Týndi sonurinn er mættur heim. Velkominn, Luis.
Luis Alberto Rodriguez Quintero, eða betur þekktur sem Junior, þarf vart að kynna fyrir okkar helstu stuðningsmönnum. Hann hefur verið hluti af fjölskyldunni okkar síðan hann kom fyrst til Íslands.
Hann byrjaði með okkur í Bola-deildinni árið 2022 og er nú loksins mættur til okkar formlega. Við vitum hvað Junior hefur upp á að bjóða. Hæfileikar hans og persónutöfrar munu hjálpa liðinu að ná markmiðum okkar í sumar.
Athugasemdir




