Hinn 41 árs gamli Birkir Már Sævarsson hefur skrifað undir samning við Aftureldingu og mun spila með liðinu í Lengjudeildinni á næsta tímabili.
Það þarf ekki að kynna þennan reynslumikla leikmann fyrir þjóðinni en hann spilaði 103 landsleiki og er fjórði leikjahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi. Hann spilaði með landsliðinu á EM í Frakklandi árið 2016 og HM í Rússlandi árið 2018.

Hann hefur unnið Íslandsmeistaratitilinn þrisvar með Val á ferlinum. Þá spilaði hann með Brann í Noregi og Hammarby í Svíþjóð á atviinnumannaferlinum. Hann spilaði með Nacka í Svíþjóð í fyrra.
Hann hefur æft og spilað með KH í vetur en hefur nú samið við Aftureldingu. Þar hittir hann bróður sinn Aron Elí Sævarsson sem er fyrirliði liðsins.
„Mér líst vel mjög vel á að ganga til liðs við Aftureldingu. Ég hef fylgst vel með liðinu á síðustu árum og hrifist af leikstílnum og andrúmsloftinu í kringum klúbbinn. Svo er auðvitað gamall draumur að rætast þegar ég fæ loksins tækifæri til að spila með litla bróður mínum. Þannig að ég hlakka mikið til sumarsins í Mosó,” sagði Birkir eftir undirskrift.
Athugasemdir