Liverpool leiðir kappið um Camavinga - Flick veit ekki hvað gerist með Rashford - Arsenal þarf að selja - Bruno ánægður hjá Newcastle
   sun 22. mars 2026 12:20
Ívan Guðjón Baldursson
Emil Skúli í Gróttu (Staðfest)
Lengjudeildin
Mynd: Grótta
Emil Skúli Einarsson er búinn að gera samning við Gróttu. Hann skiptir yfir á Seltjarnarnes eftir að hafa leikið fyrir Þrótt R. allan ferilinn.

Emil Skúli er 23 ára varnarmaður með 73 leiki að baki fyrir Þrótt í deild og bikar.

„Það er gleðiefni að fá Emil Skúla til liðs við okkur. Hann er á besta aldri og hefur góða reynslu úr Lengjudeildinni. Hann er öruggur með boltann og snjall varnarmaður ásamt því að vera skemmtilegur karakter. Ég efast ekki um að hann verði mikilvægur fyrir Gróttu næstu árin," segir Magnús Örn Helgason yfirmaður fótboltamála hjá Gróttu.

Emil Skúli er ánægður með fyrstu vikurnar í Gróttu en hann býr nú þegar á Seltjarnarnesinu.

„Ég er mjög sáttur að vera kominn í Gróttu. Þetta er sterkur og skemmtilegur hópur og ég er viss um að sumarið verði frábært. Ég hlakka til að leggja mitt af mörkum og hjálpa liðinu að ná sínum markmiðum," segir Emil.

Grótta fór upp úr 2. deild í fyrra og leikur því í Lengjudeildinni komandi sumar.


Athugasemdir
banner
banner