Sindri Kristinn Ólafsson er búinn að semja við Vasalund í Svíþjóð eftir að hafa verið aðalmarkvörður hjá Keflavík og FH í íslenska boltanum.
Sindri Kristinn tilkynnti á dögunum að hann ætlaði sér að flytja til Svíþjóðar til að vera nær unnustu sinni, landsliðskonunni Guðrúnu Arnardóttur sem er í mikilvægu hlutverki hjá sterku liði Hammarby í efstu deild.
Vasalund leikur í þriðju efstu deild sænska deildakerfisins og endaði í þriðja sæti í fyrra, átta stigum frá baráttunni um sæti í næstefstu deild.
„Ég er mjög ánægður að ganga í raðir Vasalund," sagði Sindri við undirskriftina. „Ég hef leikið á Íslandi allan ferilinn og hlakka til að hefja nýtt ævintýri. Ég mun gefa allt í þetta og vonandi munum við eiga gott tímabil saman. Vasalund sýndi mikinn áhuga á mér og þess vegna var þetta auðvelt val fyrir mig."
16.03.2026 12:47
Sindri Kristinn kominn með lið í Svíþjóð
Athugasemdir



