Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
banner
   fim 19. mars 2026 10:49
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heiðar Snær til Grindavíkur (Staðfest)
Lengjudeildin
Mynd: Grindavík
Grindavík í Lengjudeildinni hefur samið við Heiðar Snær Ragnarssson og semur hann til tveggja ára.

Heiðar Snær eru 24 ára gamall og hefur á seinustu árum leikið með Val Reyðarfirði (KFA).

Hann hefur einnig verið á mála Einherja, Keflavík, Leikni F. og Njarðvík. Heiðar Snær er eldri bróðir Eiðs Orra sem spilar með Keflavík.

Á síðasta tímabili skoraði hann sjö mörk í 18 leikjum í 2. deild.

„Við bjóðum Heiðar hjartanlega velkominn í gula búninginn," segir í tilkynningu Grindvíkinga.

Komnir
Damir Muminovic frá Breiðabliki
Ingi Þór Sigurðsson keyptur frá ÍA (var á láni)
Hjörvar Daði Arnarsson frá ÍBV
Rafael Victor frá Þór
Robert Blakala frá Selfossi
Stefán Jón Friðriksson frá Keflavík
Heiðar Snær Ragnarsson frá KFA
Rúnar Ingi Eysteinsson frá Þrótti V. (var á láni frá Keflavík)
Valur Þór Hákonarson frá Víði (var á láni frá Keflavík)

Farnir
Adam Árni Róbertsson í Þrótt R.
Ármann Ingi Finnbogason í Víking (var á láni frá ÍA)
Rúrik Gunnarsson í Leikni (var á láni frá HK)
Breki Þór Hermannsson í Vestra (var á láni frá ÍA)
Árni Salvar Heimisson (var á láni frá ÍA)
Terry Lartey-Sanniez til Hollands
Matias Niemela (var á láni frá Vestra)

Samningslausir
Dennis Nieblas Moreno
Haraldur Björgvin Eysteinsson
Kristófer Máni Pálsson
Manuel Gavilan Morales
Darren Sidoel
Arnar Smári Arnarsson
Friðrik Franz Guðmundsson
Kristófer Leví Sigtryggsson
Athugasemdir
banner
banner