FRÉTTIR03.03.2026, 09:23
Framherjinn Rafael Victor hefur verið kynntur hjá Grindavík en Fótbolti.net greindi frá því í síðasta mánuði að hann væri á leið til félagsins.
<i>„Við bjóðum Rafael velkominn til Grindavíkur og hlökkum til að sjá hann í gula búningnum í sumar,"</i> segir í tilkynningu Grindavíkur.
FRÉTTIR02.03.2026, 21:55
Ingólfur Sigurðsson mun spila með Reyni Sandgerði í sumar en þetta tilkynnir félagið á heimasvæði sínu á Facebook í dag.
FRÉTTIR02.03.2026, 19:24
Bandaríski miðjumaðurinn Weston McKennie hefur framlengt samning sinn við ítalska félagið Juventus til fjögurra ára.
FRÉTTIR02.03.2026, 16:13
Jóhannes Kristinn Bjarnason er genginn í raðir Víkings. Hann gengur til liðs við Íslandsmeistarana frá danska félaginu Kolding og skrifar hann undir samning til ársins 2029.
Jóhannes Kristinn, sem er 21 árs, er uppalinn hjá KR og fór ungur út til Norrköping í Svíþjóð en sneri svo aftur í Vesturbæinn. Hann lék vel með KR fyrri hluta síðasta tímabils og var seldur til Kolding í Danmörku síðasta sumar.
Jóhannes spilaði 12 leiki með Kolding í dönsku B-deildinni og skoraði eitt mark fyrir félagið. Hann á jafnframt 28 leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands og hefur skorað í þeim 2 mörk.
FRÉTTIR02.03.2026, 07:00
Varnarmaðurinn Davíð Helgi Aronsson mun leika með Keflavík á láni frá Íslandsmeisturum Víkings á komandi tímabili. Þetta kemur fram í tilkynningu Keflvíkinga.
FRÉTTIR02.03.2026, 06:00
Magni á Grenivík hefur sótt þá Hauk Leo Þórðarson og Pétur Orra Arnarson frá nágrönnum sínum í Þór. Magnamenn greina frá þessu á heimasvæði sínu á Facebook.
FRÉTTIR01.03.2026, 13:24
Bjarni Guðjón Brynjólfsson er genginn til liðs við Þór frá FH á láni út komandi tímabil.
Bjarni Guðjón er uppalinn hjá Þór og er því mættur aftur í Þorpið. Hann var seldur til Vals haustið 2023 en gekk til liðs við FH um mitt sumar 2024.
FRÉTTIR27.02.2026, 20:27
Norska stórveldið Molde FK, sem endaði óvænt í 10. sæti deildarinnar í fyrra, er búið að kaupa táning úr röðum Liverpool.
FRÉTTIR27.02.2026, 18:40
Víkingur Ólafsvík er búinn að styrkja sig með brasilískum framherja sem kemur úr röðum Club Deportivo Boiro sem leikur í fimmtu efstu deild á Spáni.
FRÉTTIR27.02.2026, 18:34
Michaela Easter er búin að skrifa undir samning við ÍA sem gildir út tímabilið og mun berjast um markmannsstöðu Skagakvenna komandi sumar.
FRÉTTIR27.02.2026, 17:00
Norwich City hefur selt sóknarmanninn Josh Sargent til Toronto FC í MLS-deildinni fyrir rúmlega 20 milljónir punda.
Þessi 26 ára bandaríski landsliðsmaður krotaði undir fimm ára samning eftir að hafa staðist læknisskoðun.
Hann er dýrasti leikmaður sem félag í MLS-deildinni hefur keypt, ásamt Son Heung-min sem fór til Los Angeles FC í ágúst.
FRÉTTIR26.02.2026, 20:09
Nýliðar Þórs hafa fengið Ganamanninn Isaac Antanga frá sænska félaginu Kalmar FF en hann semur til þriggja ára. Þetta kemur fram í tilkynningu á Þór/Sport í dag.
FRÉTTIR26.02.2026, 18:16
Enska úrvalsdeildarfélagið Brentford hefur verðlaunað írska stjórann Keith Andrews fyrir góða frammistöðu á þessari leiktíð með því að framlengja samning hans til 2032.
FRÉTTIR26.02.2026, 09:29
Þór tilkynnti í gærkvöldi um endurkomu Elvars Baldvinssonar til félagsins. Elvar gerir tveggja ára samning við Þór.
Hann kemur til félagsins frá Völsungi en hann var hjá Þór á árunum 2020-22. Hann fór svo í Vestra og hjálpaði liðinu að komast upp úr Lengjudeildinni 2023 og lék 19 leiki er liðið hélt sér uppi í Bestu deildinni 2024.
FRÉTTIR26.02.2026, 06:00
Rut Sigurðardóttir er gengin til liðs við Grindavík/Njarðvík frá Haukum. Hún skrifar undir samning út tímabilið 2027.
FRÉTTIR25.02.2026, 23:18
Völsungur hefur tekið þá ákvörðun að draga lið sitt úr keppni í Lengjubikarnum. Liðið var í riðli með Þór, Val, Aftureldingu, íA og Gróttu en liðið hafði spilað tvo leiki þar sem liðið tapaði stórt gegn Þór og ÍA.
Ástæðan er sú að það eru fáir leikmenn til taks um þessar mundir. Liðið er skipað ungum leikmönnum en eldri og reyndari eru að glima við meiðsli. Þá eru erlendir leikmenn á leið til landsins á næstu dögum.
FRÉTTIR25.02.2026, 14:02
Nökkvi Már Nökkvason er genginn til liðs við Gróttu og skrifar hann undir tveggja ára samning á Seltjarnarnesi.
Nökkvi hefur leikið með ÍBV síðustu ár og lék með þeim 22 leiki síðasta sumar í Bestu deildinni. Hann á að baki 72 deildarleiki með ÍBV og 12 fyrir venslaliðið KFS.
Hann er hinsvegar uppalinn í Garðabænum og lék upp yngri flokkana með Stjörnunni. Hann er eldri bróðir Guðmundar Baldvins Nökkvasonar sem spilar með Stjörnunni.
FRÉTTIR24.02.2026, 06:00
Barcelona hefur nælt í hinn 16 ára gamla Ajay Tavares frá Norwich. Hann hefur vakið áhuga fjölda evrópskra félaga og Norwich á rétt á bótum, þó hefur enska félagið ekki staðfest fjárhagslegar hliðar samningsins.
Hann hefur spilað með U18 ára liði enska félagsins á tímabilinu en hann kom við sögu hjá aðalliðinu á undirbúningstímabilinu.
FRÉTTIR24.02.2026, 06:00
Guðmundur Rafn Ingason er genginn til liðs við Grottu frá Stjörnunni. Hann hefur einnig spilað með Fylki en hann var á láni hjá KFG síðasta sumar.
FRÉTTIR23.02.2026, 17:30
Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar.
Kasper Högh heldur áfram að gera vel hjá Bodö/Glimt, Marseille reyndi við Xabi Alonso og Klopp vill ekki Bellingham.