Þór tilkynnti í gærkvöldi um endurkomu Elvars Baldvinssonar til félagsins. Elvar gerir tveggja ára samning við Þór.
Hann kemur til félagsins frá Völsungi en hann var hjá Þór á árunum 2020-22. Hann fór svo í Vestra og hjálpaði liðinu að komast upp úr Lengjudeildinni 2023 og lék 19 leiki er liðið hélt sér uppi í Bestu deildinni 2024.
Hann kemur til félagsins frá Völsungi en hann var hjá Þór á árunum 2020-22. Hann fór svo í Vestra og hjálpaði liðinu að komast upp úr Lengjudeildinni 2023 og lék 19 leiki er liðið hélt sér uppi í Bestu deildinni 2024.
Síðasta sumar lék Elvar 19 leiki með uppeldisfélaginu Völsungi í Lengjudeildinni.
Elvar er fæddur árið 1997 og getur bæði spilað sem miðvörður og vinstri bakvörður. Hann hefur leikið 249 leiki í deild og bikar í meistaraflokki með Völsungi, Þór og Vestra og skorað í þeim 35 mörk.
„Við bjóðum Elvar velkominn aftur í Þorpið og hlökkum til að fylgjast með honum í baráttunni í sumar," segir í tilkynningu Þórs.
Þór vann Lengjudeildina í fyrra og verður í Bestu deildinni á komandi tímabili. Elar
Komnir
Ágúst Eðvald Hlynsson frá Vestra
Atli Sigurjónsson frá KR
Kristófer Máni Sigurðsson frá Hetti
Elvar Baldvinsson frá Völsungi
Birgir Ómar Hlynsson frá ÍBV (var á láni)
Pétur Orri Arnarson frá Völsungi (var á láni)
Farnir
Orri Sigurjónsson hættur
Clement Bayiha til Kanada
Rafael Victor í Grindavík
Juan Guardia í Völsung
Dagbjartur Búi Davíðsson í KA (var á láni)
Samningslausir
Kári Jónsson
Rúnar Daði Vatnsdal Sveinsson
Athugasemdir

