Arsenal, Liverpool og City vilja Collins - Salah glaður til í að vera áfram hjá Liverpool - Man Utd hyggst selja markverði
   fim 26. febrúar 2026 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Frá Haukum í Bestu deildina (Staðfest)
Kvenaboltinn
Mynd: Grindavík/Njarðvík
Rut Sigurðardóttir er gengin til liðs við Grindavík/Njarðvík frá Haukum. Hún skrifar undir samning út tímabilið 2027.

Tilkynning félagsins
Grindavík/Njarðvík hefur fest kaup á miðjumanninum, Rut Sigurðardóttir, sem kemur til okkar frá Haukum. Rut gerir samning við okkur út tímabilið 2027.

Rut er fædd árið 2007 og er alin upp hjá Haukum þar sem hún spilaði 17 leiki í Lengjudeildinni á liðnu tímabili og gerði 3 mörk.
Alls á Rut 50 meistaraflokksleiki á vegum KSÍ þrátt fyrir ungan aldur, en auk þess sem hún á 2 U19 ára landsleiki á bakinu sem komu á síðasta ári.

Rut hefur nú þegar leikið einn leik með Grindavík/Njarðvík, gegn Þór/KA síðustu helgi en verður í eldlínunni með liðinu aftur annað kvöld gegn FH-ingum í Lengjubikarnum.

Við bjóðum Rut hjartanlega velkomna til Grindavíkur/Njarðvíkur!



Athugasemdir
banner
banner
banner