Marcus Rashford hefur samþykkt að ganga alfarið til liðs við Barcelona - Darwin Nunez eftirsóttur - Rodri er orðaður við Real Madrid
   mán 02. mars 2026 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Davíð Helgi til Keflavíkur (Staðfest)
Mynd: Keflavík
Varnarmaðurinn Davíð Helgi Aronsson mun leika með Keflavík á láni frá Íslandsmeisturum Víkings á komandi tímabili. Þetta kemur fram í tilkynningu Keflvíkinga.

Davíð Helgi er 18 ára gamall og er fastamaður í U19 ára landsliði Íslands.

Hann var á láni hjá Njarðvík á síðasta tímabili en mun nú leika með Keflvíkingum í Bestu deildinni.

Víkingar samþykktu að lána hann til Keflavíkur fyrir komandi tímabil þar sem hann mun fá mikilvæga reynslu í deild þeirra bestu.

„Ég er mjög spenntur. Ég vona að ég fái þessa reynslu í hafsentastöðunni, enn eitt tímabilið í meistaraflokksbolta, til þess að halda áfram að þróa minn leik. Þetta er stærra platform, Besta deildin, það horfa allir á Bestu. Ég hef heyrt að Keflavík sé mjög faglegur klúbbur og það var erfitt að spila á móti þeim í fyrra. Ég hef mjög mikla trú á verkefninu,“ sagði Davíð Helgi við undirskrift.

Davíð spilaði 22 leiki með Njarðvíkingum sem komust alla leið í umspil Lengjudeildarinnar á síðustu leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner
banner