Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   þri 24. febrúar 2026 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Barcelona fær ungstirni frá Norwich (Staðfest)
Mynd: Barcelona
Barcelona hefur nælt í hinn 16 ára gamla Ajay Tavares frá Norwich. Hann hefur vakið áhuga fjölda evrópskra félaga og Norwich á rétt á bótum, þó hefur enska félagið ekki staðfest fjárhagslegar hliðar samningsins.

Hann hefur spilað með U18 ára liði enska félagsins á tímabilinu en hann kom við sögu hjá aðalliðinu á undirbúningstímabilinu.

„Þó að við séum ótrúlega leið yfir að missa ungan leikmann úr akademíunni eins og Ajay, þá erum við gríðarlega stolt," sagði Ben Knapper, yfirmaður fótboltamála hjá Norwich.

„Framfarir Ajay hafa verið vitnisburður um frábært starf allra sem tengjast akademíunni okkar, sem hafa haft áhrif á ferðalag hans og lagt sitt af mörkum til þessa frábæra afreka.

„Ekki síst hefur Ajay verið sjálfum sér og fjölskyldu sinni til sóma og við gætum ekki verið stoltari af því að sjá hann stíga þetta skref til eins af sögufrægustu knattspyrnufélögum og akademíum í heimi fótboltans.“

Athugasemdir
banner
banner