Dýrt að reka Amorim - Klopp ekki að skipta um vinnu - Murillo enn í myndinni hjá Liverpool
   fös 27. febrúar 2026 20:27
Ívan Guðjón Baldursson
Molde kaupir leikmann frá Liverpool (Staðfest)
Koné-Doherty er vinstri kantmaður að upplagi og hefur verið mikilvægur hlekkur upp yngri landslið Norður-Írlands, með 5 mörk í 31 leik.
Koné-Doherty er vinstri kantmaður að upplagi og hefur verið mikilvægur hlekkur upp yngri landslið Norður-Írlands, með 5 mörk í 31 leik.
Mynd: Molde
Norska stórveldið Molde FK, sem endaði óvænt í 10. sæti deildarinnar í fyrra, er búið að kaupa táning úr röðum Liverpool.

Sá heitir Trent Koné-Doherty og er 19 ára gamall. Hann hefur komið við sögu í tveimur keppnisleikjum með Liverpool en vildi ekki endurnýja samning sinn við Englandsmeistarana.

Samningur hans við Liverpool átti að renna út næsta sumar en Molde borgar þrátt fyrir það 750 þúsund evrur til að ganga frá kaupunum. Auk þess heldur Liverpool endurkaupsákvæði og stóru hlutfalli af endursöluvirði leikmannsins.

Liverpool bauð Koné-Doherty nýjan samning sem táningurinn hafnaði. Hann vill reyna fyrir sér með meistaraflokki og verður áhugavert að fylgjast með hans þróun í Noregi.


Athugasemdir
banner
banner
banner