Michaela Easter er búin að skrifa undir samning við ÍA sem gildir út tímabilið og mun berjast um markmannsstöðu Skagakvenna komandi sumar.
Michaela, sem er kölluð Mikki, er fædd árið 2001 og lék í næstefstu deild í Austurríki í fyrra eftir að hafa verið í sex ár í bandaríska háskólaboltanum.
„Mikki er kraftmikill alhliða góður markvörður. Hún er fellur vel inn í hópinn og er mikill leiðtogi, bæði innan vallar sem utan," segir meðal annars í tilkynningu frá ÍA, sem leikur í Lengjudeildinni.
Athugasemdir



