Guðmundur Rafn Ingason er genginn til liðs við Grottu frá Stjörnunni. Hann hefur einnig spilað með Fylki en hann var á láni hjá KFG síðasta sumar.
Tilkynning Gróttu
Guðmundur Rafn Ingason hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild Gróttu. Guðmundur, sem er fæddur árið 2004 kemur til félagsins frá Stjörnunni.
Guðmundur er markmaður og lék með KFG í 2. deild síðasta sumar á láni frá Stjörnunni. Hann var í tvö ár á mála hjá Fylki en er uppalinn Garðbæingur og Stjörnumaður.
Velkominn Guðmundur!
Athugasemdir



