Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25202 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR09.02.2023, 10:42

Olav Öby í KR (Staðfest)

<p>KR hefur bætt við sig leikmanni fyrir Bestu-deild karla í sumar en norski miðjumaðurinn Olav Öby er kominn með leikheimild með liðinu frá og með morgundeginum. Í tilkynningu frá KR kemur fram að Öby skrifar undir tveggja ára samning í Vesturbænum.</p>

FRÉTTIR08.02.2023, 17:30

Matarazzo nýr stjóri Hoffenheim (Staðfest)

Þýska úrvalsdeildarfélagið Hoffenheim hefur ráðið Pellegrino Matarazzo sem nýjan stjóra. Matarazzo er 45 ára Bandaríkjamaður, sem er af ítölskum uppruna eins og nafnið gefur vísbendingar um. Hann þekkir vel til hjá Hoffenheim því hann starfaði hjá félaginu 2017-2019, fyrst við þjálfun yngri liða félagsins og var síðan aðstoðarmaður Julian Nagelsmann hjá aðalliðinu.

FRÉTTIR08.02.2023, 09:18

Tedesco er nýr þjálfari Belgíu (Staðfest)

Hinn 37 ára gamli Domenico Tedesco hefur verið ráðinn nýr landsliðsþjálfari Belgíu. Tedesco fæddist í Ítalíu en er með þýskan ríkisborgararétt. Þessi fyrrum stjóri Schalke, Spartak Moskvu og RB Leipzig hefur skrifað undir samning út EM í Þýskalandi 2024.

FRÉTTIR07.02.2023, 12:07

Bjarki Björn lánaður frá Víkingi í ÍBV (Staðfest)

ÍBV hefur fengið Bjarka Björn Gunnarsson frá Víkingi. Bjarki er kominn með leikheimild með ÍBV og má spila með liðinu á laugardag þegar liðið sækir Leikni heim í fyrstu umferð Lengjubikarnum. Hann er 22 ára uppalinn Víkingur sem getur spilað á miðjunni eða í bakverði. Hann var á láni hjá Kórdrengjum í fyrra, Þrótti Vogum 2021 og Haukum 2020 og býr því yfir talsverðri reynslu úr neðri deildunum. Hjá Þrótti Vogum lék hann undir stjórn Hermanns Hreiðarssonar sem er í dag þjálfari ÍBV.

FRÉTTIR07.02.2023, 11:49

Kundai Benyu farinn frá ÍBV (Staðfest)

Miðjumaðurinn Kundai Benyu hefur yfirgefið ÍBV en þessi 25 ára landsliðsmaður Simbabve lék með Eyjamönnum seinni hluta síðasta tímabils. Hann kom frá Vestra þar sem hann lék í Lengjudeildinni 2021 en í fyrra spilaði hann sjö leiki í Bestu deildinni en stóð ekki undir væntingum.

FRÉTTIR07.02.2023, 11:09

Fyrrum leikmaður ársins í Finnlandi til ÍBV (Staðfest)

ÍBV tilkynnti rétt í þessu að félagið hefði fengið slóvenskan miðjumann í sínar raðir. Sá heitir Filip Valencic og skrifar undir eins árs samning í Eyjum. ÍBV endaði í 8. sæti í Bestu deildinni í fyrra á sínu fyrsta tímabili í efstu deild síðan 2019.

FRÉTTIR06.02.2023, 21:00

Spænsk markadrottning í ÍR (Staðfest)

<p>ÍR er búið að krækja í spænskan framherja fyrir komandi átök í 2. deild kvenna. Sú heitir Maria Marin Asensio og er 24 ára gömul.</p>

FRÉTTIR06.02.2023, 18:00

Loic Remy í franska boltann (Staðfest)

<p>Franska félagið Brest er búið að staðfesta sex mánaða samning við sóknarmanninn Loic Remy, sem lék meðal annars fyrir Chelsea og Newcastle í enska boltanum.</p>

FRÉTTIR06.02.2023, 17:20

Víkingur fær unglingalandsliðsmann frá Fiorentina (Staðfest)

Unglingalandsliðsmaðurinn Baltasar Þráinn Dellernia hefur fengið félagaskipti frá Ítalíu til bikarmeistara Víkings. Ekki hefur verið skráður samningur við leikmanninn en hann er kominn með leikheimild. Hann er sautján ára miðjumaður sem hefur verið hjá Fiorentina undanfarin ár. Hann getur einnig sinnt hlutverki varnarmanns.

FRÉTTIR06.02.2023, 16:30

Carlos Queiroz tekur við landsliði Katar (Staðfest)

Portúgalinn Carlos Queiroz hefur verið ráðinn nýr landsliðsþjálfari Katar. Hann tekur við starfinu af Spánverjanum Felix Sanchez Baz. Katar var á heimavelli á síðasta heimsmeistaramóti en liðið spilaði skelfilega á mótinu og tapaði öllum leikjum sínum.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.