Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25098 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR16.01.2026, 19:00

Brann selur Helland til Bologna fyrir metfé (Staðfest)

Bologna hefur staðfest kaupin á norska varnarmanninum Eivind Helland frá Brann. Kaupverðið er rúmlega 8 milljónir evra en hann er dýrasti leikmaður sem Brann hefur selt. Áður var Aune Heggebo sá dýrasti en hann gekk til liðs við West Brom fyrir 5,5 milljónir evra í fyrra.

FRÉTTIR16.01.2026, 18:00

Fílabeinsstrendingur til Sunderland (Staðfest)

Sunderland hefur nælt í Fílabeinsstrendinginn Jocelin Ta Bi frá Maccabi Netanya frá Ísrael. Enska félagið borgar rúmlega 3 milljónir punda og hann skrifar undir samning sem gildir út árið 2030. Sunderland hefur möguleika á að framlengja samninginn um eitt ár til viðbótar.

FRÉTTIR16.01.2026, 14:31

Glasner lætur af störfum hjá Palace í sumar (Staðfest)

Oliver Glasner, stjóri Crystal Palace, hefur staðfest að hann muni yfirgefa félagið í sumar þegar samningur hans rennur út. Austurríkismaðurinn hefur gert magnaða hluti með Palace en hann stýrði liðinu til síns fyrsta stóra titils þegar þeir unnu Manchester City í úrslitaleik FA-bikarsins í fyrra. Með sigrinum kom Glasner liði Palace í Sambandsdeildina og þá vann liðið Samfélagsskjöldinn í ágúst, með því að leggja Liverpool eftir vítakeppni. Glasner er samkvæmt veðbönkum talinn mjög líklegur til að verða stjóri Manchester United í sumar. Hann segist hafa ákveðið að yfirgefa Palace til að takast á við nýja áskorun á ferlinum en að hann hafi ekki talað við neitt félag. <i>„Ákvörðunin var tekin fyrir nokkrum mánuðum síðan. Ég fundaði með Steve Parish (stjórnarformanni og eiganda) í landsliðsglugganum í október. Við töluðum lengi saman og ég tjáði honum að ég myndi ekki gera nýjan samning,"</i> segir Glasner.

FRÉTTIR16.01.2026, 12:42

Blikar gera breytingar á bakvið tjöldin - Eyjó orðinn yfirmaður fótboltamála (Staðfest)

Eyjólfur Héðinsson hefur tekið við nýju hlutverki hjá Breiðabliki, en hann fær titilinn yfirmaður fótboltamála hjá félaginu. Hann hefur verið í starfi sem deildarstjóri meistaraflokka félagsins síðustu misseri og verið starfsmaður Breiðabliks frá árinu 2022. Hlutverk hans stækkar eftir að Alfreð Finnbogason, tæknilegur ráðgjafi fótboltadeildarinnar, sagði skilið við félagið. Eyjólfur ber ábyrgð á faglegu starfi deildarinnar, og leiðir fótboltalegar áherslur og stefnumörkun. Hann býr yfir mikilli reynslu, er fyrrum atvinnumaður og hefur unnið styrktarþjálfari og aðstoðarþjálfari. Hann lék á sínum tíma fimm A-landsleiki. Breiðablik tilkynnti í dag um breytingar á skipulagi og skipuriti fótboltadeildarinnar. <i>„Markmið breytinganna er að einfalda og skýra skipulag, boðleiðir og stjórnun. Með þessum breytingum, sem samþykktar voru af stjórn í byrjun desember, verður lögð enn frekari áhersla á faglegt starf deildarinnar, allt frá yngstu flokkunum og upp í meistaraflokka félagsins, og skýra framtíðarsýn,"</I> segir í tilkynningunni.

FRÉTTIR16.01.2026, 11:30

Van Nistelrooy aðstoðar Koeman á HM (Staðfest)

Ruud van Nistelrooy hefur verið ráðinn nýr aðstoðarþjálfari Holland og verður hægri hönd Ronald Koeman á komandi HM sem fer fram í sumar. Þetta er í þriðja sinn sem Nistelrooy tekur við starfi aðstoðarþjálfara landsliðsins, en hann gegndi því hlutverki einnig á árunum 2014 til 2015 og á Evrópumótinu árið 2021.

FRÉTTIR16.01.2026, 08:52

Malen kominn til Roma (Staðfest)

Donyell Malen hefur yfirgefið Aston Villa og er genginn í raðir ítalska félagsins Roma. Villa tilkynnir að Malen sé genginn í raðir Roma fyrir upphæð sem ekki sé gefin upp en Roma tilkynnir að þetta sé lánssamningur með möguleika á kaupum.

FRÉTTIR15.01.2026, 23:00

Hætta með KV (Staðfest)

Orri Fannar Þórisson og Davíð Guðrúnarson eru hættir sem þjálfarar KV í 3. deildinni.

FRÉTTIR15.01.2026, 19:20

Brian Madjo til Aston Villa (Staðfest)

Aston Villa er búið að ganga frá kaupum á hinum 17 ára gamla Brian Madjo sem kemur til félagsins úr röðum franska félagsins Metz.

FRÉTTIR15.01.2026, 18:20

Fenerbahce kaupir Guendouzi (Staðfest)

Tyrkneska stórveldið Fenerbahce er búið að festa kaup á franska miðjumanninum Mattéo Guendouzi sem kemur til félagsins úr röðum Lazio.

FRÉTTIR15.01.2026, 17:33

Buonanotte til Leeds (Staðfest)

Leeds United er búið að staðfesta félagaskipti Facundo Buonanotte til félagsins á lánssamningi sem gildir út tímabilið.

FRÉTTIR15.01.2026, 16:30

Guðrún aftur til Svíþjóðar (Staðfest)

Landsliðskonan Guðrún Arnardóttir er búin að finna sér nýtt félag eftir að hafa rengið samningi sínum rift hjá Braga í lok síðasta árs. Guðrún skrifar undir samning við Hammarby í Svíþjóð. Hún þekkir mjög til í Svíþjóð en hún fór til Djurgården frá Breiðabliki fyrir tímabilið 2019, var þar fyrstu árin í Svíþjóð áður en hún fór til Rosengård þar sem hún varð sænskur meistari í þrígang. Síðasta sumar fór hún svo til Portúgals. Guðrún er þrítug og semur út tímabilið 2027. Hammarby endaði í 2. sæti deildarinnar á síðasta tímabili og vann bikarinn.

FRÉTTIR15.01.2026, 07:30

Ungur framherji til Roma (Staðfest)

Hinn 18 ára gamli Robinio Vaz er genginn til liðs við Roma frá Marseille. Hann skrifar undir samning út árið 2030. Roma borgar um 25 milljónir evra fyrir hann.

FRÉTTIR15.01.2026, 06:00

Freyr snýr aftur til Dalvíkur/Reynis (Staðfest) - Auðunn framlengir

Freyr Jónsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Dalvík/Reyni. Hann skrifar undir tveggja ára samning. Freyr er miðjumaður fæddur árið 2001 en hann spilaði með Dalvík/Reyni árið 2024 áður en hann hélt til Bandaríkjanna í mastersnám. Hann varð síðan fyrir meiðslum og spilaði ekkert síðasta sumar.

FRÉTTIR15.01.2026, 06:00

Andrea Katrín skrifar undir á Selfossi (Staðfest)

Miðvörðurinn Andrea Kristín Ólafsdóttir hefur skrifað undir samning við Selfoss. Hún kemur til liðsins frá Aftureldingu. Selfoss spilar í Lengjudeildinni næsta sumar eftir að hafa rúllað yfir 2. deild síðasta sumar.

FRÉTTIR14.01.2026, 16:14

Conor Gallagher til Tottenham (Staðfest)

Tottenham hefur gengið frá kaupum á enska miðjumanninum Conor Gallagher en hann kemur frá Atletico Madrid og greiðir enska félagið 34 milljónir punda fyrir hann. Hann er uppalinn hjá grönnum Tottenham, Chelsea. Hann er 25 ára og skrifar undir langtímasamning við Tottenham. Gallagher á að baki 22 A-landsleiki og kom einn af þeim á síðasta ári. Eins og fyrr segir er Gallagher uppalinn hjá Chelsea og lék með liðinu áður en hann var seldur til Atletico Madrid sumarið 2024. Þar skoraði hann 77 leiki í öllum keppnum og skoraði sjö mörk, Hann er fyrsti leikmaðurinn sem Tottenham fær í sínar raðir í glugganum en von er á því að brasilíski bakvörðurinn Souza verði einnig kynntur á næstu dögum.

FRÉTTIR14.01.2026, 15:45

Annar bandarískur leikmaður á Suðurnesin (Staðfest) - „Frábær varnarmaður"

Nýliðar Grindavíkur/Njarðvík halda áfram að þétta raðirnar fyrir komandi tímabil í Bestu deildinni. Í dag var kynntur nýr leikmaður, bandarískur miðvörður. Hannah McLaughlin útskrifaðist frá Vanderbilt háskólanum í fyrra. Grindavík/Njarðvík endaði í 2. sæti Lengjudeildarinnar síðasta sumar og verður því í Bestu deildinni á komandi tímabili. Miðað við drög að niðurröðun sem birt var í dag mætir liðið Val á útivelli í 1. umferð deildarinnar þann 25. apríl. Bandaríski markvörðurinn Lauren Kellett samdi við félagið fyrr í þessum mánuði og landsliðskonan Natasha Anasi skrifaði undir í byrjun nóvember.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.